breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að ég spyr um þessi tölulegu markmið er að við erum með tölulegt markmið í verðbólgumarkmiði. Það er búið að vera að rembast mjög mikið við að halda því markmiði og hefur gengið vel. Það hefur reynt á ýmislegt til að hægt hafi verið að halda því. Atvinnuleysi er nátengt því markmiði, sem hefur blessunarlega ekki verið vandamál hingað til en er vandamál núna. Þess vegna er ég að spyrja: Bíddu, fyrirgefið. Ef það er ekki verðbólgan sem er vandamálið lengur miðað við spár en atvinnuleysið er vandamál, hvaða árangri ætlum við þá að ná með stefnu stjórnvalda? Á sama hátt og við höfum stefnu stjórnvalda um peningamál til að viðhalda verðbólgumarkmiðum ætti að vera til stefna stjórnvalda til að viðhalda litlu atvinnuleysi. Hvaða árangri náum við með þessari fjármálastefnu í því viðmiði? Það er ekki einu sinni tekið fram hvert er umfang þess óvissusvigrúms sem er hér í gangi, hversu mikið eigi einfaldlega að nota það í að leysa atvinnuleysisvandann. Þar er hagvöxturinn einmitt falin. Ef við náum að virkja þá sem eru atvinnulausir erum við fljótari að ná upp þeim hagvexti sem annars er glataður af því að þeir sem eru atvinnulausir eru ekki að vinna að sameiginlegum markmiðum og þeirri verðmætasköpun sem alltaf er verið að tala um í þessari köku. Ef við skiljum viðkomandi eftir atvinnulausa erum við með glötuð tækifæri þar. Ég hefði haldið að þetta óvissusvigrúm, þessar skuldir sem við erum fara í, yrði nýtt til þess að koma hlutunum af stað og ná hagvextinum strax upp aftur til að geta borgað niður skuldirnar. Það að geta sagt að þetta sé efnahagsjöfnunaraðgerð þýðir í raun ekki að það sé skuld ríkissjóðs þegar allt kemur til alls af því að við erum að jafna efnahaginn.