150. löggjafarþing — 132. fundur,  27. ág. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[15:47]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það og ég held að ég hafi margendurtekið að í þessu tilfelli skilji ég að við séum að breyta stefnunni, sem betur fer. Ekki hefði ég viljað fara í gegnum þennan vetur með óbreyttri stefnu. Ég vona að við náum sem bestum samhljómi um að verja kerfin okkar, verja heimilin í landinu, verja stofnanirnar, um leið og við getum búið til viðspyrnu fyrir fyrirtæki. En ég er annars vegar að tala um yfirlýsingar Sjálfstæðisflokksins og að honum einum sé treystandi fyrir stöðugleika og jafnvægi og efnahagsstjórn, á sama tíma og hann barðist fyrir reglu sem hann mun þurfa að endurskoða, væntanlega síðar á árinu, og stýrir fjármálaráðuneyti þar sem stefnunni hefur verið breytt tvisvar. Þó að ég geri ekki athugasemdir við að það sé gert í þetta sinn þá gagnrýndum við það síðast vegna þess að við töldum ekki endilega efni til þess þá. Og aftur að íþróttunum; ágætur formaður fjárlaganefndar og prýðilegur knattspyrnuþjálfari hefur örugglega kallað sína menn saman í leikhléi eða gefið bendingar inn á völlinn og sagt leikmönnunum að breyta um takt og breyta um leikkerfi. Ég er ekki að tala um það, ég er að tala um að ef þjálfarinn færi nú að reyna að hafa áhrif, í samtali við aðstoðardómarann, um að breyta rangstöðureglunni þá myndi það sennilega ekki ganga.

En bara svo það sé skýrt: Ég geri engan ágreining um að stefnunni sé breytt að þessu sinni og ég tel að það sé gott og það sé forsenda fyrir því að við getum tekist á við það brjálæðislega hrun sem við munum þurfa að horfast í augu við. En við þurfum hins vegar að fara að segja hvernig við ætlum að gera það. Það er grunnurinn að því að við getum gert það. Það verður spennandi umræða sem mun eiga sér stað fyrstu vikurnar í október.