breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Já, ég get þá allt eins kallað þessar aðstæður pólitíska vatnspásu vegna þess að hér er raunverulega ástæða til að breyta hlutunum, um það þurfum við ekki að deila meira. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að það er nauðsynlegt að búa til hallasvigrúm til þess að við getum tekist á við þetta verkefni. En þá mun tíminn leiða það í ljós hvort við notum þann halla rétt og það svigrúm sem skapast. Við munum fljótlega óska eftir því að svörin fari að koma af því að því er ekki að leyna að við erum með t.d. tvo flokka í ríkisstjórn sem byggja á mjög ólíkum grundvallarstefnum og svo erum við með flokk í miðju sem hefur getað unnið með flestum, og mér hefur þótt mjög vænt um þegar hann sýnir á sér félagshyggjuhliðina, sem hann gerir mjög oft. Ég reiði mig á þessa tvo flokka, Framsóknarflokkinn og Vinstri græn, að þeir stígi fast til jarðar núna og sýni félagshyggjuna í sér fram í rauðan dauðann. Ég held að það skipti ofboðslega miklu máli. Ég er hræddur um að ef það verður ekki gert getum við dýpkað kreppuna, minnkað möguleika á viðspyrnu og kallað ótrúlega ógæfu yfir fólk að nauðsynjalausu. Við skulum bara vona það að í október þegar við förum að ræða fjármálaáætlun verðum við að einhverju leyti samstiga um þær áætlanir sem þar verða lagðar fram.