breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Raunveruleikatenging er ekki eitt af grunngildum laga um opinber fjármál. Við höfum rætt þetta í þessum sal áður og velt því fyrir okkur hvort það væri kannski æskilegt markmið að stefna að því að áætlanir hins opinbera væru aðeins betur bundnar við raunveruleikann en þær stundum eru. Vegna þess má ég til með að hrósa hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir að hafa tengt þessa stefnu aðeins betur við raunveruleikann en maður hefði kannski óttast. Það að mæta áfallinu með því að láta ríkissjóð taka á sig höggið er skynsamleg hagstjórn. Það má alveg velta því fyrir sér hvort það hafi nokkuð verið mikið val um annað, hvort áfallið sé ekki hreinlega það umfangsmikið að með því að velja einhverjar aðrar leiðir hefði þessi spennitreyja, sem fjármálaráð hefur nú stundum nefnt þær stefnur sem snúa að opinberum fjármálum, jafnvel farið að kæfa okkur algerlega. Það er gott að fagna því sem vel er gert en auðvitað bíðum við eftir því að sjá hvernig fjármálaráð metur stefnuna í heild sinni og hversu vel hún rími við þær aðstæður sem uppi eru og hversu líkleg hún sé til að ná fram þeim markmiðum sem nauðsynleg eru.
Síðan er umhugsunarefni — og það er eitthvað sem við þurfum ekki að útkljá á þessum þingstubbi í sumar heldur gætum kannski farið að ræða með haustinu — að við séum núna í þriðja sinn á jafn mörgum árum að fjalla um fjármálastefnu sem á að fjalla um fimmta hvert ár, að við séum að víkja til hliðar fjármálareglunum sem sú stefna byggir á, sem eru einmitt reglurnar sem fjármálaráð segir að myndi þessa spennitreyju. Þær reglur hafa alltaf verið umdeildar. Alveg frá því 2015 þegar lög um opinber fjármál voru samþykkt í þessum sal hefur verið bent á að mögulega sé of langt gengið í tölulegum markmiðum laga um opinber fjármál.
Lítum t.d. á skuldahlutfallið, að skuldir hins opinbera megi ekki fara yfir 30% af landsframleiðslu. Það var bent á það fyrir fimm árum þegar lögin voru samþykkt að þetta væri ekki eftir alþjóðlegum viðmiðum, þetta væri þröngt og ósveigjanlegt. Núna þegar búið er að ríflega tvöfalda það, það er verið að setja það upp í 64% í þeirri stefnu sem við ræðum í dag, er það samt ekkert svakalega hátt. Þá erum við bara komin á svipað ról og Maastricht-skilyrði evruríkjanna, sem sumum þykja þó býsna þröng þegar gefur á bátinn. Ég held því að það sé full ástæða til að ræða hvort þurfi nýjan grunnpunkt í þessi tölulegu markmið til þess að hægt sé að koma með stórtækari aðgerðir þegar veruleg áföll ríða yfir.
Sama má svo sem segja um hallamarkmið laganna. Við sjáum það núna þegar á að reka ríkissjóð með um og yfir 10% halla þrjú ár í röð, samkvæmt stefnunni, að það er rétta leiðin til þess að komast í gegnum þann skafl sem fram undan er. Það er ekkert endilega náttúrulögmál að opinber fjármál eigi að vera hallalaus á hverju fimm ára tímabili. Reyndar þótti mér hæstv. fjármálaráðherra tala dálítið á þeim nótum áðan þegar hann tók undir að sennilega væri of bratt að fara mjög afgerandi í það að ná þessum markmiðum að þremur árum liðnum. Þá erum við bara komin á þann stað að fjárlaganefnd þarf að taka til alvarlegrar skoðunar að breyta þessum markmiðum.
Mig langar að lesa til gamans upp úr minnisblaði Indriða Þorlákssonar sem hann lagði til þingsins þegar frumvarp til laga um opinber fjármál var til umfjöllunar 2015. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í heild má segja að fjármálareglur frumvarpsins leggi ekkert til við stjórn efnahagsmála á þenslutímum eða í aðdraganda ójafnvægis en geti verið til óþurftar við að vinna á afleiðingunum á eftirfarandi samdráttartíma.“
Þetta held ég að sé bara að rætast. Þetta held ég að hæstv. fjármálaráðherra, ef hann tæki þá umræðu, myndi taka undir að miklu leyti miðað við hvernig hann talaði hér í morgun. Það er gott, enda myndi það hafa skelfilegar afleiðingar ef stjórnvöld ákvæðu að koma fjármálareglunum í fullan gang strax að þessum þremur árum liðnum.
Eitt atriði langar mig að nefna örstutt sem hefur verið farið yfir í nokkrum ræðum. Það er aðhaldskrafan í fjárlögum og fjármálaáætlun sem er vikið að í fjármálastefnunni. Það hefur verið bent á að eldri aðhaldskrafan er enn inni, 2% almennt aðhald og 0,5% á heilbrigðiskerfið og menntakerfið. Hæstv. fjármálaráðherra benti á að samt ætti að bæta peningum í þessa geira til að takast á við aukin verkefni. Það er náttúrlega þetta undarlega jójó sem er í gangi hjá fjárveitingavaldinu þegar önnur höndin gefur og hin tekur. Aðhaldskröfunni er haldið til streitu á sama tíma og bætt er í fjármagni.
En það sem sló mig sérstaklega þegar ég var að lesa greinargerð stefnunnar er á bls. 19, um það hvernig stjórnvöld áforma að ná grunngildum laga um opinber fjármál. Þar segir, með leyfi forseta:
„Til að ná framangreindum markmiðum er ljóst að auka þarf aðhaldsstig opinberra fjármála á síðari hluta gildistíma næstu fjármálaáætlunar með því að hægja á vexti útgjalda og aðlaga þau að umfangi tekjuhliðar hins opinbera.“
Ég geri ráð fyrir að þessi næsta fjármálaáætlun sem vísað er til sé sú sem gilda á árin 2021–2025, sem sagt sú sem við tökum til umfjöllunar í haust. En þarna stendur svart á hvítu, herra forseti, að það sé ásetningur stjórnvalda að koma okkur í gegnum skaflinn sem er fram undan og fara síðan í niðurskurð. Við ætlum öll að vera saman í að komast í gegnum afleiðingar Covid og ef okkur tekst það þá birtist hér fyrsta sameiginlega kosningaloforð stjórnarflokkanna: Þau ætla að fara að skera niður. Eftir giska þrjú ár verður hér niðurskurður í boði sameiginlegs kosningaloforðs stjórnarflokkanna svart á hvítu. Við hljótum að óska þeim til hamingju með að vera þetta tímanlega í kosningabaráttunni og þetta er gagnsæi sem er til fyrirmyndar. En ég er ekki viss um að þetta sé rétt stefna, bara hreint ekki viss.