breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Á heimilum í landinu þar sem núna eru áhyggjur eftir atvinnumissi eða á þeim heimilum þar sem eru áhyggjur vegna rekstrarvanda fara þær áhyggjur auðvitað ekki fram hjá börnunum. Mig langar í því sambandi að segja frá samtali sem situr alltaf dálítið í mér sem ég átti við litlu dóttur mína í kreppunni 2008. Þá höfðum við farið í bankann einn daginn og rákumst þar á mömmu leikfélaga hennar. Við spjölluðum við þessa konu í stutta stund og dóttir mín sagði henni í mjög löngu máli frá sínum degi, en eftir að við vorum komnar heim sagði litla stelpan mín við mig: Það er gott að Íslandsbanki fór ekki á hausinn og mamma hans Arnars missti ekki vinnuna. Hún virtist fanga alvöru ástandsins og gleðjast mikið yfir því að mamma vinar hennar hefði sloppið við að missa vinnuna og vegna þessarar gleði hennar þá átti ég um leið dálítið erfitt með að leiðrétta ákveðin atriði í þessari frásögn hennar, eins og að þessi banki slapp nú kannski ekki alveg við það. Ég tók þess í stað bara undir með henni og sagði að það væri gott að mamma hans Arnars hefði ekki misst vinnuna eins og margir gerðu því miður á þessum tíma. Þá svaraði hún: Já, það er gott, því þá hefði hún örugglega fengið kreppuna. Í hennar huga fengu þeir kreppuna sem misstu vinnuna. Mér fannst það nokkuð góð hugsun hjá litlu barni.
Þessi saga rifjaðist upp fyrir mér vegna þess að árið 2020 er eðli kreppunnar kannski einmitt dálítið á þessa leið. Það þarf að skoða það hverjir það eru sem fá kreppuna því þetta er atvinnuleysiskreppa. Kostnaður við efnahagsáfallið í kjölfar kórónuveirunnar leggst einfaldlega mjög ójafnt á samfélagið allt því að atvinnuleysið er, enn sem komið er a.m.k., bundið mjög við ákveðna geira atvinnulífsins og hittir fólk mjög misjafnlega hart fyrir. Við þekkjum auðvitað ferðaþjónustuna og unga fólkið og ég held að það sé heldur ekki hægt að líta fram hjá því að þetta er kreppa sem bítur landsbyggðina mjög harkalega.
Fyrri kreppur hér innan lands hafa yfirleitt birst í veikingu krónunnar og verðbólgu og það er auðvitað atriði sem hefur í för með sér að kaupmáttur okkar flestra rýrnar. Þetta efnahagslega áfall er ójafnara högg. Eftirspurn hvarf alfarið á ákveðnum sviðum og áfallið skall á okkur með litlum fyrirvara. Það gerði enginn neitt af sér. Það var enginn sérstakur glannaskapur í gangi sem framkallaði þetta áfall. Og þegar eftirspurn hverfur alfarið á ákveðnum sviðum eins og gerðist núna hefur það dramatísk áhrif á fyrirtækin og fólkið sem starfar í þeim atvinnugreinum á meðan aðrir finna minna og jafnvel lítið fyrir áfallinu og ástandinu.
Ég held að þetta útskýri kannski að einhverju leyti það að á meðan sumir upplifa þetta ástand þannig að veiran hafi kannski framkallað einhver tækifæri til að endurmeta og endurskoða lífshætti búa aðrir við nagandi fjárhags- og afkomuáhyggjur.
Fólkið í ferðaþjónustunni finnur auðvitað harkalega fyrir þessu, fólkið í menningu og listum í vetur, unga fólkið og útlendingar á atvinnumarkaði, tölur um atvinnuleysi þeirra eru allt aðrar en hjá Íslendingum. Ég held að hægt sé að súmmera þessa stöðu upp þannig að efnahagslegar afleiðingar veirunnar eru sannarlega ekki að bíta okkur jafnt. Í þessari kreppu er það einfaldlega alls ekki þannig að við séum öll á sama báti.
Varðandi nýframlagða fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar þá sýnist manni við fyrstu sýn að hún dragi dálítið úr þessu efnahagslega áfalli — aðeins, ekki sérstaklega mikið. Við í Viðreisn höfum verið á því að þarna vanti kraftinn og dampinn. Við erum núna í annað skipti að endurskoða fjármálastefnuna og tilefnið núna er auðvitað ærið. Við stöndum frammi fyrir aðstæðum sem við þekkjum ekki og eigum enn þá erfitt með að sjá langt fram í tímann, en myndin er tekin að skýrast. Við erum þeirrar skoðunar að fjármálastefnan sé ágæt svo langt sem hún nær en hún nær bara ekki sérlega langt. Hún gerir of lítið og skrefin eru of hægfara. Það þarf að fara í kraftmiklar og kraftmeiri aðgerðir og gera það strax.
Auðvitað er margt gott gert og margt gott hefur verið gert en mér sýnist stefnan ekki spegla nægilega sterkt þá trú stjórnvalda að við séum að glíma við tímabundið ástand. Það eru þrátt fyrir allt allar líkur til þess að svo sé, að þetta sé tímabundið ástand. Sé það trúin og sé það sýnin hlýtur að skipta máli að gefa fólki væntingar um að það geti staðið af sér þetta tímabundna erfiða ástand og haldið síðan áfram eftir það og að það ætlum við öll að gera saman sem samfélag.
Þess vegna finnst manni skrefin vera of lítil og taktur stjórnarinnar of hægur því að tímabundið efnahagslegt högg, í ríki þar sem skuldastaða ríkissjóðs er góð, réttlætir einfaldlega að viðbrögðin séu sterk af hálfu stjórnvalda og að gripið sé hratt inn í og örugglega. Núna hefði verið lag að leggja fram áætlun sem myndi raunverulega lyfta eftirspurn innan lands og draga verulega úr atvinnuleysi. Það hefur verið fjallað um það hér í dag hvað atvinnuleysið kostar okkur til lengri og skemmri tíma. Ég held að ég geti leyft mér að segja úr mínu fyrra starfi hjá ákæruvaldinu að það sé sannarlega reyndin að atvinnuleysi hefur margar og sorglegar birtingarmyndir.
Nú skiptir máli að við séum öll saman um að takast á við tímabundið efnahagslegt áfall sem, eins og ég segi, bítur okkur mjög misjafnlega hart. Það skiptir máli að gefa fólki og fyrirtækjum og þeim greinum atvinnulífsins sem eiga erfitt núna væntingar og von um að ástandið sé í fyrsta lagi tímabundið og eftir að tímabundnu erfiðu ástandi slotar séu forsendur til að halda áfram. Stjórnvöld eiga að lýsa því markvisst yfir með stefnunni að það sé reyndin, að þegar þessu erfiða ástandi linni þá ætlum við að halda áfram. En verði niðurstaðan 10% atvinnuleysi í lok ársins, eins og núna er verið að spá, hefur það t.d. gífurleg áhrif á eftirspurn innan lands ef fólk á að vera í þeirri stöðu að lifa á lægstu bótum. Það mun ekki hafa ráð á því að taka þátt í samfélaginu, með öllum þeim neikvæðu áhrifum sem slíkt hefur á persónu og líf þess en líka fyrir samfélagið allt.
Mig langar í því ljósi að fagna því skrefi stjórnarinnar að leggja það nú til að lengja tekjutengdar atvinnuleysisbætur. Það held ég að sé bæði jákvætt skref og nauðsynlegt. Í því sambandi þarf að hugsa það þannig að það sé ekki bara réttlætismál fyrir fólk sem á því þarf að halda, þó að þau rök ein og sér ættu að duga til að sannfæra mann um að sú ákvörðun sé rétt, heldur sé dýrt fyrir samfélagið allt að hafa fólk sem er atvinnulaust tímabundið á þeim kjörum að það geti ekki tekið virkan þátt í samfélaginu. Núna þurfum við að gera allt sem við mögulega getum til að lyfta eftirspurninni innan lands og ef við erum með 10% þjóðarinnar á þeim kjörum að þau geta það ekki held ég að það geti haft þau áhrif á eftirspurn að það stuðli jafnvel að frekara atvinnuleysi.
Viðreisn hefur í vetur lagt áherslu á það að til lengri tíma litið þurfi viðbragðið líka vera þannig að við séum að byggja upp ekki bara sterkara atvinnulíf heldur fjölbreyttara. Það verður sterkara með því að atvinnulífið sé fjölbreyttara. Við viljum núna auðvelda fólki að skapa sér tækifæri og tekjur með því að lækka gjöld og álögur á vinnuveitendur og með því að setja fókus á menntun og nýsköpun. Það hefur verið settur fókus á nýsköpun en þar má gera meira og betur.
En aftur vil ég segja: Markmiðið hlýtur að vera að við ætlum að komast í gegnum þetta saman og við þurfum að gefa þeim sem fá kreppuna væntingar um að ástandið sé tímabundið og að stjórnvöld hafi og ætli og muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að milda höggið.