150. löggjafarþing — 133. fundur,  28. ág. 2020.

fjáraukalög 2020.

969. mál
[17:06]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Það var engri spurningu beint til mín í þessu andsvari hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar en verulega áhugaverðar vangaveltur hv. þingmanns sem ég held að hann geti útvíkkað nánar, þroskað og þróað, og haft áhrif á það í starfi sínu í fjárlaganefnd. Og ég hvet hann til þess.