150. löggjafarþing — 134. fundur,  2. sept. 2020.

Störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég auglýsi eftir hv. þingmönnum sem ekki vilja heimila strandveiðar í september. Ég veit að hæstv. sjávarútvegsráðherra, Kristján Þór Júlíusson, telur sig skorta lagaheimild til þess að bæta við aflaheimildir smábátasjómanna. Ég veit að hv. formaður atvinnuveganefndar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, sagði í viðtali við RÚV fyrir viku að hún teldi svigrúm til að leyfa strandveiðar í september. Ég veit líka að hún ræddi þá afstöðu sína við hæstv. ráðherra og sagðist bjartsýn um samstöðu um nauðsynlegar lagabreytingar á þessu þingi.

Ég veit hins vegar ekki hver þau eru sem ekki vilja heimila strandveiðar í september. Að loknum fundi nefndarinnar á föstudag trúði ég því að enginn hefði lagst gegn því að finna lagaheimild fyrir strandveiðum. Eftir fundinn fór formaður nefndarinnar í fjölmiðla og sagði að ekki væri þinglegur vilji fyrir því að heimila strandveiðar.

Ég hlýt að spyrja, virðulegur forseti, úr hvaða potti hv. þingmaður dregur þá niðurstöðu. Ekki kannast formaðurinn við að standa í vegi fyrir því og hæstv. sjávarútvegsráðherra skýlir sér á bak við skort á lagaheimild. Hæstv. ráðherra hefði getað verið með tilbúið frumvarp fyrir nefndina til að flytja áður en þing hófst að nýju. Formaður nefndarinnar hefði sömuleiðis geta haft frumkvæði að því að nefndin legði fram frumvarp en það gerði hvorugt. Raunar var það hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem kallaði eftir umræddum fundi á föstudaginn var og það var sú sem hér stendur sem auglýsti eftir því hverjir stæðu í raun og veru í vegi fyrir þeirri heimild á fundi nefndarinnar í gær. Ekki fékk ég að vita hverjir eru á móti, aðeins að ekki væri samstaða um það. Ég bókaði því vonbrigði mín með þann óljósa skort á samstöðu í gær. Ég bið þá þingmenn sem ekki vilja leggja smábátasjómönnum lið að gefa sig fram. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )