tilkynning.
Við göngum nú til atkvæðagreiðslna á stækkuðu þingfundasvæði. Það hefur nokkrar breytingar í för með sér, m.a. þær að ekki sjá allir þingmenn, eðli málsins samkvæmt, á atkvæðagreiðslutöflurnar hér í salnum en myndavélar eiga engu að síður að varpa mynd af þeim upp á skjá í hliðarsal. Formenn þingflokka og formenn flokka sitja í salnum þannig að ef það er mönnum hjálplegt að sjá hvernig þeir hyggjast ráðstafa atkvæði sínu þá á að mega ráða í það. Ekki hafa allir sömu föstu sæti og áður var, þ.e. ekki heldur hér í salnum, en formenn þingflokka sitja nokkurn veginn þar sem þeir voru áður og þeir ráðherrar sem eru inni í salnum nokkurn veginn í sínum sætum. Við skulum vona að þetta gangi allt saman vel. Forseti mun reyna að fara rólega í gegnum atkvæðagreiðsluna þannig að allir komi sínum rétti til skila.