150. löggjafarþing — 135. fundur,  2. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[22:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við ræddum stöðu foreldra langveikra barna í velferðarnefnd. Þar var mikill samhljómur um að við þyrftum að leita allra leiða til að mæta þessum hóp. Það getur verið flókið úrlausnarefni vegna þess að það lýtur ekki sömu lögmálum og þegar fólki er skipað samkvæmt sóttvarnarlögum að fara sjálft í sóttkví. Þetta er öðruvísi og því þarf að mæta með öðrum hætti. Þess vegna leggjum við, meiri hluti velferðarnefndar, mikla áherslu á að haldið verði áfram að skoða hvernig hægt er að mæta þessum hóp með enn öflugri hætti en gert var, og hv. þingmaður nefndi, með eingreiðslu sem nemur 25% af fullum umönnunargreiðslum fyrir einn mánuð vegna aukinnar umönnunar. Ég tel þetta mjög mikilvægt. En við þurfum að komast að niðurstöðu um hvernig á að nálgast það. Foreldrar eru í mjög mismunandi aðstæðum. Langveik börn og einstök börn geta ekki verið í því úrræði sem þeim stendur til boða og foreldrar fara heim til að sinna þeim.

Ég held að fleiri þurfi að koma að málinu, sveitarfélögin, ríkið og fleiri aðilar. Við þurfum að finna lausn sem fyrst. Við gátum ekki gert það á þeim skamma tíma sem gafst til að vinna málið. Það þarf að vanda til verka og við beinum því sérstaklega til félagsmálaráðuneytisins að gæta að stöðu þessa viðkvæma hóps.