150. löggjafarþing — 135. fundur,  2. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru.

972. mál
[22:39]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 2. minni hluta hv. velferðarnefndar um frekari aðgerðir vegna vinnumarkaðar en um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru.

Annar minni hluti fagnar þeim nauðsynlegu breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu, svo sem framlengingu hlutabótaleiðar, lengingu tekjutengingar atvinnuleysisbóta, hvatningu til náms, heimild atvinnuleitenda til að stunda nám sem skipulagt er með vinnu, framlengingu launa í sóttkví og stuðningi við þá sem lenda í slysi eða veikjast og þurfa tímabundið að hverfa af vinnumarkaði. 2. minni hluti bendir þó á að tímasetning framlagningar frumvarpsins og boðaðrar framlengingar úrræða er ófullnægjandi þar sem fólki og fyrirtækjum er nauðsynlegt að skipuleggja sig til lengri tíma. Augljóst er að það að taka ákvörðun eftir mánaðamót um framlengingu úrræðis sem féll úr gildi um mánaðamótin skapar óöryggi hjá fjölskyldum og fyrirtækjum sem þurfa að reiða sig á úrræðið. Skipulagning starfsemi í fyrirtækjum sem reiða sig á atvinnugreinar sem hafa orðið fyrir miklu höggi getur ekki átt sér stað með þeim hætti sem ríkisstjórnin er að framkvæma núna, þ.e. frá degi til dags, heldur er nauðsynlegt að stjórnvöld skapi eins mikið öryggi og mögulegt er til lengri framtíðar. Það hefur borið svolítið á því að ríkisstjórnin reki núna ríkissjóð frá degi til dags en ég held að fyrirtækjarekendur reyni að skapa einhvers konar sýn fram í tímann og einhvers konar öryggi.

Annar minni hluti fagnar þeirri viðleitni ríkisstjórnarinnar að lengja tekjutengt tímabil atvinnuleysisbóta úr þremur mánuðum í sex en afleiðingar þess áfalls sem vinnumarkaðurinn og íslenskt samfélag í heild sinni hefur orðið fyrir munu ekki hverfa á næstu mánuðum og því verður að gera allt sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir að fjöldi fjölskyldna glími við fátækt í vetur, vor og næstu árin. Nauðsynlegt er því að lengja tekjutengda tímabilið frekar og bendir 2. minni hluti stjórnvöldum á að hefja strax undirbúning við kostnaðarmat og greiningar á frekari framlengingu tekjutengingar atvinnuleysisbóta. 2. minni hluti bendir þar að auki á að mikið tekjufall hefur orðið hjá stórum hluta þeirra sem nú hafa misst vinnu sína en meðallaun fyrir fullt starf eru í kringum 800.000 kr. á mánuði samkvæmt framreiknuðum tölum frá Hagstofu Íslands um laun fyrir árið 2018. Á Íslandi eru atvinnuleysisbætur áunnin réttindi launafólks til að tryggja afkomuöryggi við atvinnumissi. Fyrirkomulagið byggist á grunngildum norrænnar jafnaðarstefnu og var komið á hérlendis eftir mikla baráttu verkalýðshreyfingar og stjórnmálaflokka sem tóku slaginn fyrir almenning og stóðu með almenningi. Þetta er gríðarlegt hagsmunamál fyrir okkur öll, fyrir þau heimili sem verða fyrir atvinnuleysi, en atvinnuleysistryggingarnar eru einnig hagkvæmar út frá þjóðhagslegu sjónarmiði og hagstjórnarlegum markmiðum og því hagsmunamál fyrir okkur öll.

Grunnatvinnuleysisbætur eru 289.510 kr. á mánuði sem er töluvert lægra en lægstu laun sem nú eru 335.000. Að auki eru greiddar 11.500 kr. eða 4% af grunnatvinnuleysisbótum með hverju barni undir 18 ára. Með samþykkt laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru voru greiðslur með hverju barni hækkaðar í 6% til bráðabirgða, til 31. desember 2020, eða í rúmar 17.000 kr. með hverju barni.

Tekjutengdar atvinnuleysisbætur nema 70% af tekjum fyrir atvinnumissi en þó að hámarki rúmar 456.000 kr. á mánuði. Tekjufall þeirra sem hafa tekjur umfram 650.000 kr. er því umfram þau 30% sem lagt er upp með á tekjutengda tímabilinu. Tekjutenging bóta skiptir litlu máli fyrir heildarmyndina ef atvinnuleysistímabilið verður langt. Eftir skatt eru grunnatvinnuleysisbætur 242.700 kr. og tekjutengdar bætur eftir skatt rúmar 348.000 kr. Af þessum tölum má sjá að fjárhagslegt tjón einstakling sem missir vinnuna er verulegt og hefur mikil áhrif á fjárhag heimilis hans og fjölskyldu og þar með líf og heilsu viðkomandi. Stór hluti þeirrar upphæðar sem ríkið leggur til hækkun atvinnuleysistrygginga skilar sér beint til baka í gegnum skatta og aukin efnahagsumsvif. Augljóslega dregur sá sem þarf að framfleyta sér á atvinnuleysisbótum verulega úr neyslu sinni. Mikið og langvarandi atvinnuleysi hefur því einnig neikvæð áhrif á eftirspurn í hagkerfinu sem aftur fækkar störfum. Fátækt og neyð á heimilum er samfélaginu þannig dýr í öllum skilningi. Áhrif kreppunnar í kjölfar Covid-19 faraldursins bitnar harðast á þeim sem missa vinnuna og fjölskyldum þeirra. Til að dreifa byrðum og draga úr tekjufalli heimila landsins telur 2. minni hluti mikilvægt að hækka atvinnuleysisbætur og leggur því til að þær hækki í a.m.k. eitt ár, að þetta verði tímabundið úrræði. Fátækt, herra forseti, er pólitísk ákvörðun sem stjórnvöld geta og eiga að koma í veg fyrir.

Annar minni hluti leggur til að hlutabótaleiðin svokallaða verði framlengd til 1. júní 2021. Hlutabótaleiðin var vel heppnuð aðgerð sem fyrst og fremst gekk út á að viðhalda ráðningarsamningi þegar atvinnuleysi jókst mikið. Stjórnvöld tóku því miður þá ákvörðun sl. vor að beina fyrirtækjum landsins frekar í það úrræði að segja upp fólki með stuðningi stjórnvalda í uppsagnarfresti en að liðka til fyrir fyrirtæki til að viðhalda ráðningarsambandi. 2. minni hluti varaði mjög við þeirri ákvörðun enda hefur komið í ljós að sú ákvörðun var dýr, þetta voru dýr mistök. Fækkaði einstaklingum í hlutabótaúrræðinu úr rúmum 30.000 í tæplega 3.000 á tímabilinu. Stærstur hluti fyrirtækja og stofnana finnur fyrir áhrifum Covid-19 faraldursins og við stjórnun og rekstur fyrirtækja þarf núna og næstu mánuði og mögulega misseri að ígrunda vel hvers kyns útgjöld. Þess vegna þarf rekstraraðili afar góð rök fyrir því að fjölga starfsmönnum þegar þannig árar. Hins vegar er það að auka starfshlutfall þeirra starfsmanna sem þegar starfa hjá fyrirtækinu þegar hagurinn vænkast einfaldari aðgerð þar sem ráðningarsambandið er þegar til staðar. Það er fyrir hendi og þess vegna skiptir máli að stjórnvöld geri allt sem þau geta til að viðhalda ráðningarsambandi þeirra sem enn eru að nýta sér þetta úrræði. 2. minni hluti vonast til þess að hagur íslensks samfélags verði farinn að vænkast á vormánuðum og leggur því til framlengingu úrræðisins til 31. maí 2021. Þetta er ekki síst til þess að skapa smá fyrirsjáanleika í aðgerðum ríkisstjórnarinnar en mjög hefur skort á fyrirsjáanleika síðustu vikur og mánuði og er ekki bara hægt að skrifa það á að við séum á fordæmalausum tímum heldur líka á einhvers konar skort á framsýni og hugrekki í þessum ákvörðunartökum.

Fyrir liggur að umsóknir um greiðslu launa í sóttkví eru umtalsvert færri en áætlað var. Kostnaðarmat með úrræðinu hljóðaði upp á 600–700 milljónir en ljóst er núna að kostnaðurinn er mun minni eða um 190 millj. kr. Tekin var sú ákvörðun að heimila að foreldrum barna sem þurfa að sæta sóttkví séu greidd laun í sóttkví enda nauðsynlegt að foreldrar geti annast ung börn sín. Mikil umræða skapaðist um foreldra langveikra og mikið fatlaðra barna sem þurfa sólarhringsþjónustu. Þau börn hafa mörg hver þurft að dvelja heima án skólaþjónustu eða annarrar daglegrar þjónustu frá því að faraldurinn hófst án þess að vera sjálf í sóttkví. Stjórnvöld mættu þeim foreldrum sem augljóslega urðu fyrir því að þurfa að vera frá vinnu allan þennan tíma með því að greiða hluta umönnunargreiðslna. Fyrir nefndinni kom fram að fjárhæðin fyrir allt að þriggja mánaða fjarveru foreldris frá vinnu hafi verið á bilinu 25.000–33.000 kr. alls í eitt skipti. Þetta var lausnin sem barnamálaráðherra bauð foreldrum fatlaðra og langveikra barna í vor. Það er alveg augljóst að vinnuveitendur landsins geta ekki einir borið kostnaðinn við fjarveru starfsfólks síns í svo langan tíma né geta foreldrar langveikra og fatlaðra barna þolað tekjumissi mánuðum saman. 2. minni hluti leggur því til að heimild til greiðslu launa í sóttkví — athugið bara þetta úrræði, þessi lög, heimild til greiðslu launa í sóttkví — nái einnig til þeirra tilvika þegar foreldrar geta ekki sinnt vinnu að öllu leyti eða hluta vegna sóttvarnaráðstafana sem leiða til þess að þjónusta við þennan hóp barna skerðist, skóla er lokað, leikskóla er lokað eða annarri þjónustu sem barnið nýtur á daginn eða mögulega allan sólarhringinn, eins og á sambýlum. Við erum að tala um börn að 18 ára aldri og við erum að tala um þau börn sem þiggja þjónustu á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir þótt barnið sjálft sé ekki í sóttkví.

Það kom fram í máli hv. þingkonu Önnu Kolbrúnar Árnadóttur að heildarfjöldi fjölskyldna sem eru í þeirri aðstöðu að barnið noti slíka þjónustu sé 500 talsins. Við skulum átta okkur á því að það eru alls ekki öll þau börn sem hafa þurft að þola það að missa algjörlega alla sína þjónustu, alls ekki, og alls ekki allir foreldrar sem hafa þurft að vera fjarverandi frá vinnu mánuðum saman. Fjármunirnir eru til.

Annar minni hluti ítrekar einnig nauðsyn þess að stjórnvöld komi til móts við námsmenn. Allt að 70% námsmanna framfleyta sér með hlutastörfum samkvæmt könnun Eurostudent en fjöldi slíkra starfa hvarf nánast á einni nóttu í faraldrinum án þess að stjórnvöld tækju nokkurt tillit til þess og kæmu námsmönnum til aðstoðar. Nei, sagði barnamálaráðherra og félagsmálaráðherra, við ætlum ekki að fara að borga fólki fyrir að gera ekki neitt. Vakin er athygli stjórnvalda á því að námsmönnum sem taka námslán hefur fækkað um helming á undanförnum tíu árum. Oftar en ekki vegna ónógrar framfærslufjárhæðar námslána. Samfylkingin hefur áður gert tilraun til þess hér í þingsal að fá ríkisstjórnina til að fallast á að námsmenn fái heimild til töku atvinnuleysisbóta tímabundið en það var því miður fellt af stjórnarliðum. Með tillögu sinni núna gerir 2. minni hluti tilraun til að koma til móts við þá námsmenn sem ekki eru í fullu námi en hafa misst vinnuna. Athugið, ekki í fullu námi, vegna þess að lánshæfi þeirra sem eiga einhvern kost á að sækja námslán yfirleitt miðast við nám að lágmarki 22 einingar á önn. Þannig liggur fyrir að þeir námsmenn sem stunda nám undir téðum einingafjölda eiga ekki rétt á námslánum. Þess vegna leggur 2. minni hluti til að einingaviðmið verði hækkað að 22 einingum svo komið sé til móts við þá námsmenn sem ekki geta verið í fullu námi og þeim veitt heimild til töku atvinnuleysisbóta. Minnt er á að námsmenn greiða sinn hluta inn í atvinnutryggingakerfið þegar þeir eru úti á vinnumarkaði án þess að njóta nokkurra réttinda í kerfinu. Þetta skapar misrétti sem ekki er hægt að gera námsmönnum og fjölskyldum þeirra að búa við. Nú vill svo til að 1. og 2. minni hluti lögðu til sams konar breytingartillögu og þess vegna styður 2. minni hluti breytingartillögu 1. minni hluta hvað varðar námsmenn.

Fyrir nefndinni kom fram að sjálfstætt starfandi listamenn hafa orðið fyrir umtalsverðu höggi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölbreytt vinnufyrirkomulag þeirra hefur vafist mikið fyrir Vinnumálastofnun vegna þess að þessir listamenn eru í blandaðri starfsemi launþega og sjálfstætt starfandi listamanna. Einhver hópur var einnig launþegi í verkefnatengdu ráðningarsambandi sem féll niður vegna faraldursins þegar menningarstofnanir lokuðu. Kom fram fyrir nefndinni að stærstur hluti þeirra sem misstu framfærslu sína að hluta eða öllu leyti í upphafi faraldurs í mars hefur enn, 24 vikum seinna, ekki fengið neina lausn mála sinna hjá Vinnumálastofnun. Svo virðist sem það mikla álag sem skyndilega lagðist á starfsfólk stofnunarinnar hafi leitt til þess að þau mál þar sem vinnufyrirkomulagið er fjölbreytt og kallar á frekari úrvinnslu hafi hreinlega verið lögð til hliðar og bíði þar enn 24 vikum seinna. Þetta þýðir að stór hópur hefur engar tekjur haft frá því í byrjun mars, enga innkomu í sex mánuði. Stjórnvöld verða að gera sér grein fyrir þessari stöðu núna og bregðast við án tafar.

Herra forseti. Við vinnslu vinnumarkaðsmála fyrir velferðarnefnd vegna Covid-19 faraldursins hefur ítrekað verið fjallað um ofálag á Vinnumálastofnun. Fram kom að úrvinnslutími umsókna sé að styttast og sé oftar en ekki jafn vel undir átta vikum í venjubundnum málum. 2. minni hluti vill árétta að stjórnvöld verða að gera allt til að koma í veg fyrir að fólk sem missir vinnuna og fjölskyldur þeirra búið við sárafátækt. Atvinnumissir bitnar mest og harðast á efnalitlum fjölskyldum og fjölskyldum í félagslega viðkvæmri stöðu sem eiga lítið eða viðkvæmt bakland hér á landi. Það að þurfa að bíða tvenn mánaðamót eða lengur eftir úrræði er einfaldlega allt of langur tími þegar enginn er varasjóðurinn. 2. minni hluti bendir á að samhliða faraldrinum hefur fólk í auknum mæli tekið út séreignarsparnað sinn og má ætla að það sé einnig vegna þess langa tíma sem tekur að greiða úr umsóknum þeirra sem leita til Vinnumálastofnunar.

Annar minni hluti vekur athygli á að víða um land hafa þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar verið lokaðar frá því að faraldurinn hófst hér á landi. Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu hafa sömuleiðis verið lokaður frá því í lok júlí. Núna eru rúmlega 20.000 einstaklingar á atvinnuleysisskrá og eru þá ekki teknir með þeir sem misstu vinnuna sl. mánaðamót. Þeir sem þurfa að leita upplýsinga geta gert það í síma eða á netinu. Símatími stofnunarinnar á þessum umtalsverðu álagstímum hefur hins vegar ekkert verið rýmkaður, þrátt fyrir lokun þjónustuskriftofa, og þar er eingöngu svaraði síma milli klukkan 9 og 15 mánudag til fimmtudags og milli 9 og 12 á föstudögum.

Herra forseti. Það er skylda stjórnvalda að tryggja að stofnanir á þeirra vegum geti sinnt lögbundnum skyldum sínum, svo sem leiðbeiningarskyldu og upplýsingagjöf til atvinnuleitenda. Þegar fjöldaatvinnuleysi skellur á með viðlíka þunga og raun ber vitni er óásættanlegt að þjónusta sé af svo skornum skammti. 2. minni hluti skorar á ríkisstjórnina að tryggja Vinnumálastofnun viðbótarfjárframlag svo hægt sé að fjölga starfsfólki stofnunarinnar um land allt og auka við og tryggja nauðsynlega þjónustu við atvinnuleitendur.

Með vísan til þess sem hér hefur verið sagt leggur 2. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til í sérstöku skjali en um er að ræða þskj. 2080 auk þeirrar tillögu 1. minni hluta er varðar breytingu á rétti námsmanna til atvinnuleysisbóta.

Undir þetta skrifar sú sem hér stendur, Helga Vala Helgadóttir.