breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Já, manni þætti sem við ættum að bregðast við hratt og örugglega en heildarendurskoðun á málaflokki langveikra barna held ég að sé ekki lausnin á vanda foreldra langveikra og fatlaðra barna. Stundum þarf annað foreldrið að fara úr vinnu til að sinna barni sem þarf sólarhringsumönnun, stundum báðir foreldrar eða aðrir ættingjar. Raunir þessa fólks frá því í upphafi faraldursins eru ofboðslegar. Við verðum auðvitað að bregðast við.
Heildarendurskoðun kallar á allt öðruvísi nálgun og vinnu og er með allt öðruvísi tímaramma. Við höfum hér í þinginu hins vegar búið til margs konar úrræði til að grípa fólk í sárri neyð, t.d. sóttkvíarlögin sem voru svo sáralítið notuð. Það liggur ljóst fyrir að einungis er búið að nota lítinn hluta af því fjármagni sem var ákveðið í það og er nú verið að framlengja. Ég skil ekki af hverju þessi hópur getur ekki farið nákvæmlega þangað. Það er ekki verið að fara að borga þessu fólki eitthvað umfram réttindi þess. Við erum einfaldlega að tala um að grípa það þegar sóttvarnaráðstafanir krefjast þess að foreldrar séu með barn heima í sólarhringsumönnun og geta ekki stundað vinnu. Það er ekkert óskilgreint eða óljóst. Það vafðist ekki fyrir sama hópi að taka einn milljarð hér fyrr í kvöld í óútfærðan, óskilgreindan varasjóð sama ráðherra út af einhverju húsnæðismáli. Ég skil ekki hvað er að þvælast fyrir fólki.