breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Virðulegur forseti. Ég skil líkt og hv. þingmaður ekki hvers vegna við þurfum að líta á einhverja heildarendurskoðun eða líta kannski á eitthvað 1. október þegar við stöndum hér á þingfundi í dag. Velferðarnefnd hefur öll verkfæri sem þarf til að ná utan um þennan hóp þannig að ég hvet hv. formann velferðarnefndar til góðra verka í því.
Mig langar að nefna hér aðeins námsfólk vegna þess að hv. þingmaður fór yfir stöðu þess í nefndaráliti sínu og þá sérstaklega þann snúning sem við tókum í vor á rétti stúdenta til atvinnuleysisbóta. Í dag birtist í Kjarnanum grein eftir forseta stúdentaráðs, Isabel Alejöndru Díaz, þar sem hún fer ágætlega yfir það hvernig stjórnvöld hafa ítrekað og kerfislægt skellt skollaeyrum við sjálfsögðum kröfum stúdenta alla síðustu mánuði, hvort sem það er varðandi þörfina og rétt þeirra til atvinnuleysisbóta eða hækkun grunnframfærslu eða hvaðeina. Í greininni bendir Isabel á að stúdentar hafi verið ofboðslega vel skipulagðir. Gerðar voru kannanir á atvinnuástandi stúdenta þannig að hægt var að koma til þingsins, koma til ráðherranna, og segja: Svona er staðan. Síðan fóru stúdentar í samstarf við ráðuneytin með þessar kannanir. Gerð var könnun á atvinnuleysi stúdenta í maílok og byrjun júní í samstarfi ráðuneytanna, stúdentaráðs og Landssambands íslenskra stúdenta sem varð síðan til þess að ráðherrann sagði að staða námsfólks væri miklu skárri en námsfólk segði sjálft, málið væri bara leyst, það þyrfti ekkert meira að gera. (Forseti hringir.) Hins vegar situr ráðherrann á gögnunum, stúdentar hafa ekki fengið að sjá þessa könnun sem þeir voru þó (Forseti hringir.) upphafsmenn að og unnu í samstarfi við ráðherrann. (Forseti hringir.)
Mig langar að spyrja: (Forseti hringir.) Hefur velferðarnefnd fengið að líta á þessa könnun (Forseti hringir.) sem liggur læst í hirslum ráðuneytisins?