150. löggjafarþing — 135. fundur,  2. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[23:05]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir seinna andsvar. Já, við stöndum hér í þinginu í dag og erum að gera breytingar á þessum sömu lögum. Við erum að tala um breytingar á lögum um stuðning við fólk sem þarf að gæta barna sinna í sóttkví. Við erum að því núna. Við erum að framlengja nákvæmlega þau lög. Það er ekkert flækjustig falið í því að liðka til, ekki bara fyrir foreldra heilbrigðu barnanna sem þurfa að vera heima, sem við gerðum í vor. Við skulum muna það, við leyfum nefnilega foreldrum heilbrigðra barna sem þurfa að fara í sóttkví að fá laun í sóttkví en foreldrar langveikra og fatlaðra barna sem þurfa að fara heim og gæta barna sinna vegna sóttvarnaráðstafana fá ekki að vera með. Það finnst mér algjört hneyksli. Það er það. Hvar er jöfnuðurinn hjá þessari ríkisstjórn? Hvar er mannúðin? Hvar er sú stefna að grípa þá sem veikast standa? Eru þetta breiðu bökin sem ríkisstjórnin ætlar að láta axla byrðarnar í þessu ástandi?

Það er svo sannarlega rétt að stúdentar komu til leiks sem samstilltur hópur, úrræðagóður, með fullt af tillögum. Þeir rannsökuðu stöðuna, gerðu kannanir ásamt öðrum evrópskum stúdentum o.s.frv. o.s.frv. og fréttu af annarri rannsókn hjá ráðherra en til þeirrar rannsóknar hefur ekkert spurst og við höfum ekki fengið neinar upplýsingar um hana heldur.(Forseti hringir.) Velferðarnefnd er á sama stað og stúdentar, við vitum ekkert nema orð ráðherra um að námsmenn standi (Forseti hringir.) miklu betur en allir þorðu að vona.