frestun kjarasamningsbundinna launahækkana.
Herra forseti. Það er vissulega alveg rétt hjá hæstv. forsætisráðherra að þetta ræðst á endanum hjá aðilum vinnumarkaðarins. En það er hins vegar ekki eins og hver önnur Facebook-færsla þegar tveir formenn stjórnarflokkanna, forvígismenn ríkisstjórnarinnar, varpa fram svona útspili. Það gerist varla í tómarúmi, ekki síst núna þegar ríkisvaldið er með stóran hluta af atvinnulífinu í fanginu, fyrir utan það svo að stór hluti af lífskjarasamningunum snýr auðvitað að aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Því hlýt ég að spyrja hvort lesa megi úr þessu vilja ríkisstjórnarinnar til að ýta til hliðar lífskjarasamningunum. Í öðru lagi vil ég ítreka spurningu sem ég verð að fá svar við: Er hæstv. forsætisráðherra sammála samstarfsmönnum sínum um að þetta sé góð hugmynd?