frestun kjarasamningsbundinna launahækkana.
Herra forseti. Ég vil fyrst segja, af því hv. þingmaður spyr mig hvort það sé afstaða ríkisstjórnarinnar að ýta lífskjarasamningunum til hliðar, að það er að sjálfsögðu ekki afstaða ríkisstjórnarinnar. Ég vil bara ítreka það sem við vorum að gera hér í gærkvöldi. Við vorum að ljúka 2. umr. um eitt af þeim frumvörpum sem einmitt snýst um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna lífskjarasamninga. Með haustinu munum við sjá fleiri mál verða lögð fram sem varða til að mynda húsnæðismarkaðinn en ég tók eftir því að hv. þingmaður ræddi hann í ræðu sinni í gær, hvað varðar stöðu leigjenda. Lögð verða fram fleiri mál sem lúta að félagslegum undirboðum sem var annar stór hluti af þeirri yfirlýsingu þannig að ríkisstjórnin vinnur áfram samkvæmt þeirri skýru yfirlýsingu sem hún gaf í kringum lífskjarasamningana. Ég hef hins vegar haft það fyrir sið hér frá því að ég tók við þessu embætti að það sem vélað er um kaup og kjör á almennum markaði er vélað um á almennum markaði. Ég ætla ekki að stíga inn í þær viðræður sem eiga heima við samningaborðið en ekki hjá mér.