150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

njósnir Bandaríkjanna á Norðurlöndum.

[11:02]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég held að þetta mál verði skoðað. Við höfum fengið upplýsingar um það af augljósum ástæðum og ég hef verið í nokkrum samskiptum við norræna kollega mína að undanförnu. En við munum funda sérstaklega á næstunni, fyrst munu norrænu ráðherrarnir og Eystrasaltsráðherrarnir funda saman og síðan munu norrænu ráðherrarnir funda þar sem þetta mál verður tekið upp ásamt því sem við höfum mikið rætt, sem eru netöryggismál. Ég ligg ekkert á þeirri skoðun minni að mér finnst við ekki vera nægilega vakandi þegar kemur að þeim málaflokki. Við erum t.d. eina ríkið í Atlantshafsbandalaginu sem ekki tekur þátt í setrinu á Ítalíu, við erum eina norræna ríkið sem ekki tekur þátt í setrinu í Helsinki og þetta er tengt bæði beint og óbeint. Ég tel að það eigi að vera forgangur hjá okkur að sinna þessum málum betur.

Þessi mál hafa iðulega verið rædd á fundum, sérstaklega á fundum okkar norrænu kollega og líka á fundum norrænu ráðherranna og Eystrasaltsráðherranna. Við ræddum þetta mikið á Borgarnesfundinum þarsíðasta sumar, bara svo dæmi sé tekið. Við erum ekki eyland þegar kemur að þessum málum. Þó að við séum eyja þá er þetta umhverfi með þeim hætti að við þurfum að vera vel vakandi.

Ég vil líka vekja athygli á skýrslu Björns Bjarnasonar, sem er framhald Stoltenberg-skýrslunnar, þar sem sérstaklega er tekið á þessum málum. Þetta einstaka mál sem hv. þingmaður nefnir er því miður ekkert einsdæmi. Ég þarf að fá betri upplýsingar hvað það varðar og ég þarf ekki að taka fram að enginn hefur komið til mín, hvorki frá því landi sem hv. þingmaður nefndi né öðrum, og beðið mig um að fá njósna um Íslendinga. Það hefur ekki dottið inn hjá mér.