150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

njósnir Bandaríkjanna á Norðurlöndum.

[11:04]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Það er ágætt að heyra að hæstv. utanríkisráðherra ætli að bera þetta upp á fundum með norrænum ráðherrum, en mér fannst alla utanríkispólitík skorta í svar hæstv. ráðherra. Hann vildi ekki einu sinni nefna Bandaríkin á nafn og í raun svaraði hann engu um álit sitt á þessum njósnum að öðru leyti en því að þetta væri vissulega alvarlegt.

Auðvitað er þetta alvarlegt. Það er verið að njósna um mögulega öll fjarskipti allra Íslendinga og vissulega öll fjarskipti marga annarra landa. Við hljótum að geta fengið ögn betra svar en þetta vegna þess að þetta er alvöru þjóðaröryggismál. Það er vissulega rétt hjá hæstv. ráðherra að við þurfum að vera miklu betur vakandi í þessum málaflokki, en það að segjast ætla að vera meira vakandi er ekki það sama og að gera eitthvað. Við þurfum að vera miklu betur vakandi. Við gætum vissulega tekið þátt í stofnunum í Tallinn og Helsinki. En hvað um að sýna frumkvæði, t.d. með því að tala við sendiherra Danmerkur (Forseti hringir.) og Bandaríkjanna?