150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[11:29]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Við ræðum hér breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum þess heimsfaraldurs sem við stöndum nú frammi fyrir. Á mannamáli eru þetta frekari aðgerðir vegna vinnumarkaðar. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum. Sem áheyrnarfulltrúi í velferðarnefnd er ég samþykk meirihlutaálitinu. Það þýðir ekki að mér þyki það fullkomið og það þýðir ekki heldur að mér þyki ekki tilefni til að gera frekari breytingar á málinu en lagðar eru til. Samþykki mitt felst í því að mér þykja þetta hafa verið skref í rétta átt. Og það verður að segjast eins og er að velferðarnefnd gafst ekki mikill tími, frekar en þingheimi öllum, til að vinna málið áfram. Það var kynnt í síðustu viku og unnið mjög hratt, eins og þurfti að gera í ljósi þess til hvaða aðgerða er gripið.

Það er hægt að fara þá leið að fara ofan í kjölinn á hverju einasta atriði og rökstyðja að hægt hefði verið að ganga lengra eða að það vanti einhverjar upplýsingar eða eitthvað slíkt. Ég ætla svo sem að nýta mér það í einhverjum tilteknum málum á eftir. En fyrst og fremst langar mig að nota tækifærið og kynna þær breytingartillögur sem við í Viðreisn leggjum fram við þetta tiltekna mál. Þær koma seint fram en eru þó fram komnar. Ástæðuna má fyrst fremst rekja til þess að í upphafi hugsuðum við okkur að setja fram mikinn aðgerðapakka sem við kynntum á blaðamannafundi í morgun. Við höfum hugsað okkur að leggja hann allan fram sem tillögu við fjármálastefnu sem verður rædd síðar í dag. Hluti af þeim tillögum heyrir beint til þessa tiltekna máls. Ég hef því lagt þær fram og ég vonast til að þær séu gaumgæfðar mjög vel þrátt fyrir að þær komi svona seint fram.

Varðandi þetta tiltekna mál í heild má segja að það séu breytingartillögur frá mörgum hlutum minni hlutans í velferðarnefnd og frá meiri hlutanum líka. Ég myndi segja að allar þessar breytingartillögur séu til hins betra. Og mikið hefði verið gott hefði velferðarnefnd getað unnið þetta allt saman og lagt breytingarnar fram í heild sinni með aðeins yfirvegaðri hætti vegna þess að ég sé ekki betur en að allir séu að stefna í sömu átt.

Að mínu viti er hins vegar mjög mikilvægt að gera greinarmun á því hvort við horfum á tímabundnar aðgerðir vegna þeirra aðstæðna sem nú eru uppi eða breytingartillögur sem lúta að stóru myndinni, þ.e. breytingar á kerfinu í heild. Inni á milli eru slíkar tillögur. Þær eru góðra gjalda verðar og til þess fallnar að bæta þetta umhverfi. En ég er þeirrar skoðunar að við eigum núna að einblína á tímabundnar ráðstafanir vegna þess að við megum hreinlega ekki missa fókusinn. Það er verið að skoða kerfið og við munum fá tækifæri til að koma áhersluatriðum okkar þar að. Ég tel að tíma okkar nú sé best varið í að líta á tímabundnar aðgerðir vegna þess að við trúum því, ekki satt, að hér sé um tímabundinn vanda, tímabundið áfall að ræða, ekki bara samfélagsins í heild, ekki bara efnahagslífsins heldur tímabundið áfall sem hópur okkar er að kljást við fyrst og fremst í formi atvinnumissis og tekjumissis.

Tillögurnar sem við í Viðreisn leggjum til og lúta að málinu hér eru þríþættar. Við leggjum til að svigrúm til vinnu meðfram atvinnuleysisbótum verði aukið. Í dag er frítekjumarkið rétt rúmar 70.000 kr. og við leggjum til að það verði þrefaldað tímabundið, til 12 mánaða. Af því er margvíslegur ávinningur, ekki síst hvatinn eða tækifærið sem þetta felur í sér fyrir fólk sem stendur frammi fyrir því að hafa misst vinnu, og mögulega þeim veruleika að atvinna þess verði ekki eins að einhverjum tíma liðnum, til að þróa sig áfram og koma með nýjar hugmyndir.

Mér finnst þessi tillaga ekki síst spennandi þegar kemur að ferðaþjónustu og afleiddum störfum. Ég held að við getum öll ímyndað okkur að þjónustan verði að einhverju leyti öðruvísi þegar hún fer aftur á flug. Og hún mun fara á flug. Hver er betur til þess fallinn að sjá fyrir hverjar þær breytingar verða og þróa ný störf, nýjar leiðir, nýjar hugmyndir, en akkúrat fólkið sem kann á þennan bransa, hefur starfað í honum og er tímabundið atvinnulaust? Aðgerðin hefur líka þær ágætu afleiðingar að hún verður ekki útgjaldaaukandi fyrir ríkissjóð vegna þess að þetta snýst um frítekjumarkið eitt og sér.

Hinar tvær tillögurnar sem við leggjum til kosta. Önnur er sú að ganga lengra en upphaflegt frumvarp félagsmálaráðherra og breytingartillögur meiri hlutans gera varðandi tekjutengdar atvinnuleysisbætur. Við viljum í tillögum okkar sjá þær til 12 mánaða í einu og taka ákvörðun um það núna. Það byggir á því að helstu sérfræðingar okkar, þeir sem vinna við að greina gögn og nota þau til að spá fyrir um framtíðina, hvort sem um er að ræða sérfræðinga hér á landi eða í löndum í kringum okkur sem tengjast okkur, tala um að líkur séu á því að eftir 12 mánuði héðan í frá förum við að sjá til sólar. Það er heilmikið öryggi fólgið í fyrirsjáanleikanum. Ef fólk fær að vita í dag að það verði á tekjutengdum bótum hefur það öryggi til næstu 12 mánaða. Það ríður ekki endilega feitum hesti frá því en það er töluvert betra en strípaðar atvinnuleysistekjur.

Því til viðbótar viljum við líka taka utan um fólk sem er búið að vera atvinnulaust svo lengi að það er þegar farið af tekjutengdum bótum eða hefur verið með þannig tekjur að það breytir ekki öllu. Við leggjum til svokallaðan atvinnuleysisbótaauka, þ.e. að þeir sem njóta ekki tekjutengda úrræðisins fái 25.000 kr. aukalega á mánuði, líka til næstu 12 mánaða. Við erum alltaf að horfa til 12 mánaða með þessi þrjú úrræði. Og af hverju 25.000 kr.? Jú, vegna þess að það ofan á berar atvinnuleysisbætur er sú upphæð sem er í lagi án þess að það fari að ganga á annan bótarétt. Flækjustigið er minnst svona og þetta er hægt að gera þetta hratt og örugglega.

Af þeim gögnum sem fyrir liggja metum við þær tvær tillögur af þremur sem kosta á 10 milljarða kr. Allt eru þetta tímabundin úrræði og þeim er ætlað að taka utan um þann stóra hóp sem efnahagsleg áhrif viðbragða við kórónuveirunni ná raunverulega til. Eins og við vitum eru það ekki allir. Við erum öll í þeim bát að vanda okkur. Þetta hefur áhrif á félagslíf okkar. Þetta hefur áhrif á heilsu okkar, sannarlega þeirra sem veikjast. Og við berum öll ábyrgð á að ná okkur upp úr því. En efnahagslegu áhrifin ná bara til afmarkaðs hóps. Við vitum hvaða hópur þetta er. Við eigum að beina sjónum okkar tímabundið að honum. Hitt stóra verkefnið er að leggja allt í endurreisn atvinnulífsins á þann hátt að þeir sem hafa misst vinnu fái sem fyrst atvinnutækifæri þar sem hæfileikar þeirra og þekking nýtast, ekki bara þeirra vegna heldur samfélagsins alls. Í atvinnu felast ekki aðeins möguleikar fólks til að framfleyta sér. Í atvinnu fólks býr verðmætasköpun samfélagsins. Við erum ekkert ef við höfum ekki þá verðmætasköpun.

Við lítum til 12 mánaða og tillögur okkar lúta að því í staðinn fyrir að færa þetta skref fyrir skref — sem er þægilegt því að þá geta menn reiknað fram og til baka en það er óöryggi fyrir þá sem þurfa á þessu að halda. Og líkt og við treystum, svo dæmi sé tekið, á orð þeirra og spár sem best þekkja til þegar kemur að útbreiðslu faraldursins sjálfs er full ástæða til að hlusta líka á þá sem best þekkja til í greiningu tölulegra gagna og áhrifa á hagspár, haglíkön og þess háttar, sem tala um að þetta séu 12 mánuðir. Hlustum. Komi í ljós eftir þrjá eða sex mánuði að mánuðirnir séu ekki 12 heldur eitthvað annað þá stillum við okkur af. Við verðum aldrei verr sett. Og þótt þeir 10 milljarðar sem þetta kostar séu gríðarleg fjárhæð er hún dropi í hafið miðað við alls konar aðrar aðgerðir. Við vitum þó að þetta nýtist.

Úttekt Kjarnans fyrir nokkrum dögum á þeim aðgerðapökkum sem gripið hefur verið til var mjög áhugaverð. Það var aðgerðapakki eitt, tvö og síðan þrjú. Mest var lagt í þann fyrsta, 230 milljarðar ef ég man rétt. Þar af voru 60 milljarða bein fjárútlát. Fæst af þessu hefur raungerst á þann hátt sem menn töldu. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt. Við vorum öll í þoku, að reyna að fálma okkur áfram í þoku. Við vitum núna að það sem enginn hafði áhuga á, það sem ekki virkaði, voru lán. Hver skuldsetur fyrirtæki sitt þegar hann veit ekkert um tekjumöguleikana í framtíðinni? Önnur úrræði eru kannski föst einhvers staðar í kerfinu af því að það var ekki tilbúið að taka við öllum þessum óskapa fjölda flókinna umsókna. Það stendur til bóta. En það sem flaug áfram var úttekt almennings á séreignarsparnaði. Það er ekkert rosalega gott. Við viljum ekki að það verði flaggskipið í aðgerðum stjórnvalda til að hjálpa fólki út úr kreppu, að leyfa því að taka út lífeyrissparnaðinn sinn. Það er fínt með, ef þörf er á, en ekki aðal. Fólk hefur tekið út 20 milljarða af séreignarsparnaði. Aðgerðin sem leggjum til kostar 10 milljarða. Það er há upphæð en hún er ekki há í samhenginu. Við vitum að þetta aðstoðar. Við höfum tölurnar. Þetta fer beint í hjartað á þeim sem á þurfa að halda. Líkt og aðrar breytingartillögur sem hér hafa verið settar fram eru þessar jákvæðar en hafa það fram yfir að þær eru til lengri tíma, létta óvissu og eru markvissar.

Við vitum öll að atvinnuleysi — og þetta mál sem við ræðum hér lýtur að aðgerðum á vinnumarkaði — er mjög dýrkeypt fyrir samfélagið allt og afleiðingarnar eru margvíslegar. Neikvæðu langtímaáhrifin, bæði efnahagsleg og félagsleg, eru mjög mikil og við þurfum að sporna við þeim eins og við getum. Þessar tillögur eru til þess að bregðast við vanda þeirra sem eru atvinnulausir, einstaklinga og fjölskyldna þeirra. En í tillögupakkanum leggjum við líka fram margvíslegar aðgerðir til að koma hjólum atvinnulífsins af stað aftur. Og þá öllum hjólunum. Við erum að tala um fjárfestingar í opinberum framkvæmdum, flýtingu framkvæmda. Við erum að tala um hvata til aðgerða í loftslagsmálum og beinar aðgerðir sem einfaldlega verja og skapa störf. Og við munum ræða þetta allt og kynna vandlega í umræðunni um fjármálastefnuna. En þetta eru þær tillögur sem við teljum að eigi beint erindi inn í það ágæta mál sem er til umræðu.

Frú forseti. Ég hef margt og mikið um þetta mál að segja, t.d. er ég með uppbyggilega gagnrýni á aðstoð við sjálfstætt starfandi sérfræðinga, listafólk, hvernig við tökum utan um námsmennina okkar o.s.frv. Það er ekki nægilega langt gengið í þessu frumvarpi til að leysa úr vanda þeirra. En stjórnvöldum er töluverður vandi á höndum vegna þess að það er flókið og þarf að vanda vel til verka við að laga þessi mál svo að vel sé. Það sem ég er að reyna að segja er að það er langtímaverkefni. Við þurfum t.d. að fara að átta okkur á því að hefðbundið ráðningarsamband einstaklings og vinnuveitanda er svolítið að úreldast. Fólk í dag er gjarnan með vinnu hjá fleiri en einum aðila, þiggur laun fyrir vinnu sína hjá fleiri en einum aðila og er síðan að bauka eitthvað sjálfstætt líka.

Bótakerfið okkar, það sem grípur fólk, verður að taka mið af þeim breytta veruleika. Ég held hins vegar að það gæti annars vegar tafið þetta brýna mál að púsla bótakerfinu inn í tímabundnar björgunaraðgerðir og hins vegar leitt til þess að við vöndum okkur ekki nægilega vel. Ég myndi vilja sjá breytingar í þá átt að við hleypum fleirum inn í úrræðin. Þau eru tímabundin. Það er ekkert sem heitir að misnota þessi úrræði. Við erum að hjálpa fólki í bráðum vanda sem við höfum ekki gert neitt sjálf til að skapa. Þetta eru ytri aðstæður. Síðan þarf að taka tillit til allrar þeirrar fjölbreyttu gagnrýni mismunandi hópa um málið, taka hana inn í nánari og vandaða umfjöllun um sjálft atvinnuleysisbótakerfið, hvernig við ætlum að haga því til lengri tíma. Það er óskandi að það fái góðan tíma í meðförum þingsins.

Ég ætla að láta vera að fara frekar út í þau atriði. Það hefur töluvert verið nefnt hér af kollegum mínum í velferðarnefnd. Einhverjar breytingartillögur snúa að aðgerðum þar að lútandi og þær eru góðar og jákvæðar. Lykilatriðið hér, að mínu mati, er að við beitum þessu tæki, frumvarpi til laga um breytingar á lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldursins, (Forseti hringir.) aðgerðum vegna vinnumarkaðsmála, (Forseti hringir.) til að létta óvissunni af fólki, búa því í skjól í 12 mánuði, sem annars vegar veitir því fyrirsjáanleika og nokkurt fjárhagslegt öryggi og hins vegar tækifæri til að skapa eitthvað án þess að það hafi bein áhrif til skerðingar á þeim bótum sem verið er að tryggja. Þetta skiptir miklu máli.