150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[11:45]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir með hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, sem segir í nefndaráliti sínu í upphafi að það sé mjög leiðinlegt að þetta mál hafi ekki fengið þá athygli og natni sem það á skilið. Þar er kvartað undan því að nefndinni hafi verið ætlaður of skammur tími til að fjalla um málið o.s.frv. Þetta er gömul saga og ný, þetta er ekki í fyrsta sinn sem kvartað er undan þessu, hvorki hér í pontu né í nefndaráliti.

Mig langar að fara aðeins yfir breytingartillögurnar sem liggja fyrir. En til að undirstrika orð hv. þingmanns í nefndarálitinu þá eru hér nefndarálit sem bera öll þess merki, fyrir utan kannski hið síðastnefnda sem kom inn síðast, að hægt hefði verið að hafa meiri samstöðu um þetta mál innan nefndarinnar, ýmist meiri hluta og minni hluta eða annarra nefndarmanna sem flokkast ekki í þau tvö mengi. Hér kom fram breytingartillaga mjög seint, reyndar þegar umræðan var hafin á ný. Þar er ekki við hv. þingmenn að sakast sem leggja fram breytingartillögur fram heldur er það einkenni þess að farið er allt of hratt, ekki bara í þessu máli og ekki bara núna heldur allt of oft þegar við erum komin í kapphlaup við tímann. Að því sögðu verð ég að segja að eftir að hafa farið yfir þær breytingartillögur sem lagðar hafa verið fram geri ég fastlega ráð fyrir því að ég muni styðja þær allar, bæði tillögur minni hluta og meiri hluta. Þær eru margar svipaðar nema þær ganga misjafnlega langt. Má þar helst nefna að nokkrir leggja til að hlutabótaleiðin verði framlengd. Frumvarpið felur í sér að framlengja um tvo mánuði. Um leið og við fórum að ræða það í nefndinni kom mjög fljótt í ljós að það væri næstum því tilgangslaust vegna þess að það skipuleggur ekkert fyrirtæki sig einungis tvo mánuði fram í tímann þegar kemur að atvinnusambandi. Hefðbundinn uppsagnarfrestur er þrír mánuðir þannig að augljóslega eru fyrirtæki vön því og þurfa að geta skipulagt sig lengra fram í tímann en það og þess vegna eru tveir mánuðir ekki nóg.

Við ræddum þetta mál nokkuð í nefndinni og var mikið talað um það og bent á þetta. Telja má meiri hlutanum það til tekna að hann leggur til í breytingartillögu sinni að hlutabótaleiðin verði framlengd um fjóra mánuði, gott og vel. Svo kemur 1. minni hluti og leggur til sex mánuði, sem er gott, og svo kemur 2. minni hluti og leggur til níu mánuði, sem er sjálfsagt betra. Ég geri ráð fyrir að styðja það sem og þingflokkur minn. En þetta sýnir að það hefði mátt ræða málin aðeins betur. Það er enginn ágreiningur um úrræðið í sjálfu sér. Það er ágreiningur um hversu langt eigi að ganga í því að framlengja. Það er spurning um hversu lengi við teljum það að koma til móts við fólk og atvinnulífið á meðan faraldurinn gengur yfir. Hversu langt er í það? Við vitum það ekki þannig að það hlýtur að vera best fyrir fyrirtækin og fólkið í landinu að fyrirsjáanleikinn sé sem mestur. Miklu frekar ættum við að framlengja hlutabótaleiðina meira en við teljum mögulegt að við gætum þurft á því að halda og afnema þá eða taka út úrræðið þegar ekki er þörf á því lengur eða leyfa því bara að renna sitt skeið, sem er ekkert endilega það versta sem gæti gerst.

Það sem er hins vegar mjög slæmt er þegar fyrirtækin geta ekki skipulagt sig út frá úrræðunum, vita ekki fyrir fram hversu lengi þetta er og það hefur áhrif á ákvörðunartökuna í dag. Þetta er ekki spurning um óþægindi heldur að fyrirtæki sem er með starfsfólk og starfsfólkið sjálft þarf að vita að hverju það gengur í fyrirsjáanlegri framtíð. Nokkrir mánuðir eru á margan hátt minna en fyrirsjáanleg framtíð í atvinnurekstrinum, sér í lagi þegar kemur að starfsmannasambandi. Ég hafði vonað að meiri hlutinn myndi framlengja hlutabótaleiðina meira en það sem hann leggur til, til að mynda eins og lagt er til í breytingartillögum minni hluta sem borist hafa síðan.

Annað sem er ágætt að meiri hlutinn leggi til, er að ellilífeyrisgreiðslur séu ekki til skerðingar atvinnuleysistrygginga samkvæmt ákvörðunum sem þar eru undir. Það er jákvætt. En það er fleira sem mig langar til að fjalla um sem rætt var í nefndinni og virðist ekki vera tekin afstaða til. Það mál kemur frá 1. minni hluta, hv. 5. þm. Norðaust., Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, þ.e. að frumvarpið gerir ekki ráð fyrir stöðu foreldra langveikra og fatlaðra barna. Tekið er á því í breytingartillögum 1. og 2. minni hluta, sem við munum að sjálfsögðu styðja. Meiri hlutinn segir að það sé til skoðunar og hafi verið til skoðunar í dágóðan tíma hjá ráðuneytinu, þ.e. staða foreldra almennt sem ekki geta unnið vegna þess að þeir þurfa að sjá um börn sem ekki komust í skóla vegna sóttkvíar. Það er gott og blessað að skoða það en aftur á móti fæ ég ekki alveg séð hvers vegna ekki má bregðast við þessu núna, eins og 1. og 2. minni hluti gerir með tillögum sínum. Þær liggja fyrir. Af hverju getum við ekki bara greitt atkvæði með þeim?

Nú þykist ég þekkja þingstörfin nógu vel til að vita að að öllum líkindum verði tillögur minni hlutanna felldar fyrir það eitt að vera frá minni hluta. Hin hefðbundna þinglega leið til að ná fram einhverju frá minni hlutanum er það að við rökræðum hér fram og til baka. Ef meiri hlutinn fellst síðan á einhverja tillögu frá minni hlutanum vill meiri hlutinn venjulega leggja það fram sjálfur, kannski í nýrri breytingartillögu, eitthvað því um líkt. Það hefur komið fyrir. Meiri hlutinn vill þó alltaf í það minnsta hafa nöfn meirihlutaþingmanna á því og meiri hluta nefndar og svoleiðis. Í þessum aðstæðum er hins vegar ekki að sjá að það séu miklar líkur á því að við getum gert það milli 2. og 3. umr. sökum tímaskorts. Ég vil stinga því að hv. meiri hluta nefndarinnar að íhuga það hvort við hefðum ekki hugsanlega náð saman um þessar tillögur frá minni hlutanum ef við hefðum bara gefið okkur aðeins meiri tíma í málið. Ég held nefnilega að svo sé. Ég held ekki að það sé það margt í tillögum minni hlutans sem er alveg óhugsandi að áliti meiri hlutans.

Ég held að þetta sé einkenni tímaskortsins og vandamálanna sem verða til vegna hans. Þetta er mjög skaðlegt og ég þreytist sjálfur stundum á að hlusta á sjálfan mig tuða yfir áhrifum tímaleysisins á störf þingsins, en þetta skiptir verulegu máli, hefur í alvörunni áhrif til hins verra, ekki út frá pólitísku sjónarmiði heldur út frá því sjónarmiði að við sinnum starfi okkar eins vel og við viljum gera. Svo er auðvitað alltaf þrætt fyrir það vegna þess að þetta sé eins og það hefur alltaf verið, eins og það séu einhver rök gegn þessu. En ég ætla nú ekki að dvelja í þessu alla ræðuna.

Fyrsti minni hluti, hv. þm. Anna Kolbrún Árnadóttir leggur einnig til að rýmkuð verði sú heimild sem atvinnulausir hafa til stunda nám án þess að bætur skerðist. Frumvarpið felur í sér að hækka þá heimild úr 10 ECTS-einingum upp í 12, en við umfjöllun málsins, sér í lagi í umsögn frá stúdentaráði Háskóla Íslands, kom fram að það væri ekki nóg. 12 ECTS-einingar duga ekki til þess að vera gagnlegar fyrir afskaplega stóran hóp fólks og lágmarkið til að fá námslán yfir höfuð eru 22 einingar. Þannig að það er mjög skrýtið að ekki sé er gert ráð fyrir meira en 12 ECTS-einingum í þessu tilliti. Stúdentaráð Háskóla Íslands vildi reyndar fara upp í 30 og sjálfur væri ég alveg til í það. En hér er lagt til af 1. minni hluta að hækka þetta úr 12 upp í 22 ECTS-einingar, sem við styðjum að sjálfsögðu líka. Við umfjöllun um þetta atriði kom annað áhugavert fram í umsögn stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þar er bent á að frumvarpið geri ráð fyrir að koma til móts við atvinnulausa hópinn sem vill fara í nám, sem nemendur sem vilja vinna með skóla hafa verið að biðja um árum saman. Það er svolítið kaldhæðnislegt að sjá að þarna er komið til móts við einhver sjónarmið sem verið hafa til staðar hjá stúdentaráði Háskóla Íslands árum saman. Mér finnst það varpa svo skýru ljósi á að það þarf að hlusta meira á stúdenta. Mér finnst það næstum því pínlegt, eða ekkert næstum því, mér finnst pínlegt hvað það er áberandi að ekki er hlustað á stúdentaráð Háskóla Íslands eða stúdenta almennt, eins og þeir kvarta undan. Það er hálfkjánalegt að sitja í nefnd og fá gesti, stúdentar eru yfirveguðustu gestirnir sem eru með allt sitt á hreinu, góðan málstað, góð rök, gögnin sér í vil og ein af kvörtununum úr kerfinu gagnvart hinum ýmsu stofnunum ríkisins, og að mínu mati einnig þinginu, er að ekki sé hlustað á stúdenta. Það er látið eins og þeir hafi ekki sagt það sem þeir sögðu. Mér finnst það leiðinlegt. Það er eitt að hafa einhver rök gegn málflutningnum. Það er annað að segja: Við eigum ekki peninga, eða þetta kerfi þarf að vera svona eða hinsegin. En það eru svo oft ekki svörin. Svörin eru bara engin. Það er ekkert hlustað. Það finnst mér alveg afleitt. Mér fannst það koma rosalega skýrt fram við meðferð þessa máls vegna þess að hérna erum við ekki að fjalla um nemendur sem vilja vinna meira eða geta unnið meira án þess að það skerði námslánin, heldur fólk sem er á vinnumarkaði sem vill fara í nám. Það er fyndið að það sé allt í einu hlustað miklu meira á það fólk og að meiri skilningur sé gagnvart því en gagnvart stúdentunum. Ég held það sé hollt að velta fyrir sér hvers vegna það er svo. Ég held að það sé sambland af því að stúdentar eru oftar yngri en fólk á vinnumarkaði og sömuleiðis að það er því miður enn þá svolítið það hugarfar að námslán og aðstoð við nám sé einhvers konar ölmusa, sem það er auðvitað ekki. Þetta er fjárfesting okkar, samfélagsins, í samfélaginu okkar og við eigum að líta þannig á það. Við vitum að t.d. stúdentar sem mæta á nefndafundi Alþingis sýna að það að vera yngri er ekki það sama og að vita ekki hvað um að maður er að tala, alls ekki. Ég hef það á tilfinningunni að svona atriði skapi það andrúmsloft að ekki sé hlustað á þetta fólk.

Ég vil einnig ræða nýjustu breytingartillöguna sem kom frá hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson. Hún felur í sér að hækka frítekjumark við atvinnuleysisbætur þrefalt og framlengja úr sex mánuðum í tólf. Þetta finnst mér mjög áhugaverð tillaga. Reyndar hef ég ekki haft tíma til að pæla í henni meira en svo að sitja hérna í þingsal og hlýða á hv. þingmann útskýra hana í pontu fyrir mjög skömmu. En mér þykir þetta snyrtileg tillaga því að hún hækkar frítekjumark og veldur ekki beinlínis kostnaði hjá ríkissjóði, ef nokkrum yfir höfuð, því að í stað þess að setja fram meiri peninga er einfaldlega ekki skert þótt fólk vinni meira.

Sú tegund af atvinnuleysi sem við eigum við að stríða núna er vegna mjög skyndilegs áfalls á markaðnum, sem ég myndi halda, með fyrrgreindum fyrirvara, að gerði það að verkum að sá hópur sem er atvinnulaus núna er miklu óþreyjufyllri í að komast í vinnu. Eftir langt atvinnuleysi hjá fólki missir það svolítið móðinn og verður oft vonlaust. Það getur haft áhrif á hversu vel úrræðin virka og hversu vel hvatar virka, eins og hækkað frítekjumark á þá hópa. Núna er ofboðslega stór hópur atvinnulaus sem varð það allt í einu og hefur ekki verið atvinnulaus lengi, við köllum það alla vega ekki langtímaatvinnuleysi enn þá. Það er fullt af fólki sem vill ólmt fara í ný verkefni, prófa nýja hluti og gera nýjar tilraunir, sér í lagi þegar faraldrinum linnir og ferðaþjónustan tekur aftur við sér, sem hún mun gera. Upp að hvaða marki vitum við ekki, en hún mun auðvitað gera það. Þá verður einmitt þörf á nýjum hugmyndum og nýjum lausnum sem akkúrat fólkið sem nú er atvinnulaust, vegna þess að bransinn er farinn, er í hvað bestri stöðu til að finna nýjungar fyrir. Sá hópur er meira eða minna allur atvinnulaus núna og verður væntanlega á atvinnuleysisbótum þegar þetta tímabil kemur, þegar það skapast virkileg þörf á nýsköpun og nýrri hugsun og nýjum lausnum í ferðaþjónustunni. Þá er svo mikilvægt að þetta fólk geti tekið þátt í því að byggja upp án þess að fórna í leiðinni því litla öryggi sem það hefur þegar. Mér finnst þetta stórgóð lausn og betri eftir því sem ég hef sannfært um sjálfan mig um það með því að tala um hana hérna, en auðvitað með þeim fyrirvara að nefndin hefur ekki fengið tækifæri til að taka inn svona hugmyndir og ræða þær efnislega að einhverju marki.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, virðulegi forseti. Eins og ég sagði snemma í ræðunni þá geri ég ráð fyrir að þingflokkur Pírata styðji allar breytingartillögurnar. Þær eru allar góðar, eftir því sem ég fæ best séð, frá meiri hluta og minni hluta og helsti ágreiningurinn virðist vera um hversu langt eigi að ganga. Ég er frekar þeim megin í hagfræðinni að undir svona kringumstæðum sé mjög erfitt að gera of mikið. Ég held að það sé ansi langt í að yfirvöld geri of mikið til þess að bregðast við ástandinu, vegna þess að jafnvel allt sem ríkið getur gert er ekki nóg. En við sjáum hvað setur. Ég vil lauma því hér að meiri hlutanum að í ljósi aðstæðna þurfum kannski að breyta og beita aðferðum sem við erum ekki vön að nota. Og kannski meiri hlutinn greiði atkvæði hreinlega með tillögu frá minni hlutanum, tillögu sem er bara merkt þingmönnum úr minni hlutanum. Þessar sérstöku aðstæður núna gætu boðið upp á þau sérstöku vinnubrögð. En það væri þá nýbreytni til bóta og vonandi eitthvað sem verður einn daginn hefð þegar Alþingi fer að virka eins og fólk í landinu heldur að það virki.