150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[15:36]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég tók til máls áðan við 2. umr. um þetta mál. Mér finnst mikilvægt að ítreka það hér, ég tek undir með hv. formanni velferðarnefndar, að það koma góðar breytingartillögur frá minni hlutanum, en þetta frumvarp ber þess því miður merki að ríkisstjórnin misskilur hlutverk sitt í grundvallaratriðum. Hér er verið að gera einstaklingum og fjölskyldum óþarflega erfitt fyrir með því að setja þröng skilyrði og kerfi sem erfitt er að passa inn í.

Forræðishyggjan er gríðarleg. Það er ekki hlutverk ríkisstjórnar að búa til kassa til að troða fólki inn í, eins við sjáum gert í þessu frumvarpi. Við þurfum ekki stjórnmálamenn til að hafa vit fyrir okkur. Hlutverk okkar er að tryggja jöfn tækifæri og skapa jarðveg fyrir fólk til að planta fræjum sínum, vaxa og dafna á eigin forsendum og á eigin hraða, en ekki að hafa mjög þröng skilyrði í mikilvægum úrræðum sem margir munu eiga erfitt með að komast komast inn í. Það á ekki að ákveða fyrir fólk og reyna að stýra því inn í eitthvert nám sem hentar því mögulega alls ekki.

En annars verðum við græn í þessu máli af því að þetta er betrumbót.