150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[15:37]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við í Miðflokknum munum styðja allar tillögur. Þær kalla allar á aukinn fyrirsjáanleika sem okkur skortir svo mjög núna. Því miður óttast ég að við séum stödd í ákveðnu svikalogni, en við í Miðflokknum höfum einmitt kallað eftir auknum fyrirsjáanleika. Ég vil líka nota tækifærið og hvetja alla hv. þingmenn til að styðja tillögur minni hluta sem eru mjög góðar og munu gagnast mörgum.