150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[15:38]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með þeim sem töluðu á undan mér. Ef við samþykkjum tillögur minni hlutans verður þetta frumvarp mjög gott og þá getum við stolt samþykkt það og séð til þess að flest allir fái eitthvað út úr því. En því miður er stór hópur sem ekki fær neitt út úr þessu frumvarpi.