150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[15:48]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Það er mjög auðvelt að greiða atkvæði með þessu ákvæði og þessari tillögu. En ég vildi líka nefna það að þetta er eitt af þeim atriðum sem ég tel augljóst að nefndin hefði getað komið sér saman um ef við værum ekki alltaf að vinna undir tímapressu. Ég held að meiri hlutinn gleymi því oft að stundum eru útfærslurnar til staðar, það þarf ekki að bíða eftir ráðuneytinu heldur liggja þær fyrir, eins og tilfellið er með þessar breytingartillögur. Það væri óskandi að sjá meiri hlutann greiða atkvæði með þessu máli. Svo er þó ekki, en ég styð alla vega breytingartillöguna.