breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Virðulegi forseti. Það stuðningskerfi sem nær utan um langveik og fötluð börn er samfélaginu mjög mikilvægt, en það er í eðli sínu ekki sóttvarnaráðstöfun eins og sú tillaga sem við greiðum nú atkvæði um, þ.e. breyting á þeim ákvæðum. Ég tek undir með þeim þingmönnum sem hér hafa talað að það er mikilvægt að reyna að ná utan um þetta mál og segja má að þegar heimsfaraldurinn skall á höfum við gert okkur grein fyrir ákveðnum veikleika í stuðningskerfinu. Ég og meiri hluti nefndarinnar höfum hvatt hæstv. ráðherra og ráðuneytið til að taka samtalið í samráði við sveitarfélögin, vinnuveitendur og aðra hagsmunaaðila til að ná almennilega utan um þennan hóp. Ég fullyrði að slíkur stuðningur getur hæglega verið afturvirkur þegar menn hafa komið sér saman um hvernig leysa á það mál. (Gripið fram í: Áfram.)