150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[15:51]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Forseti. Mig langar aðeins að útskýra af hverju nauðsynlegt er að hækka einingafjöldann upp í 22 ECTS-einingar. Ég veit að ég er á röngum stað. En mér finnst rétt að fólk hafi tíma til að íhuga, það er hægt að hugsa um þetta í tvær til þrjár mínútur þar til við greiðum atkvæði um málið.