150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[16:00]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Forseti. Breytingartillaga mín snýr að því að þeir sem eru í starfstengdri endurhæfingu geti farið inn í úrræðið Nám er tækifæri án þess að hafa viðkomu á atvinnuleysisskrá, þ.e. að það jafngildi því að hafa verið á vinnumarkaði að hafa verið í starfstengdri endurhæfingu, enda er fólk í endurhæfingu í fullri virkni þann tíma, jafnvel 14 og upp í 18 mánuði, áður en það útskrifast.