150. löggjafarþing — 136. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .

972. mál
[16:04]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Auðvitað eigum við að hækka grunnatvinnuleysisbætur. Það er rökrétt og allt annað er bara slæm hagfræði. Öll þessi rök falla um sjálf sig og standast ekki skoðun, að slíkt sé á einhvern hátt letjandi í því ástandi sem nú er í þjóðfélaginu. Við sjáum það á nýjum rannsóknum eftir Covid-faraldurinn að það stenst ekki skoðun. Kerfi eins og atvinnuleysisbótakerfið á ekki að vera meitlað í stein. Mögulega ætti það að sveiflast með hagsveiflum, þ.e. að við hækkum og lækkum atvinnuleysisbætur eftir því hvar við erum stödd í hagsveiflunni. Ef við erum í niðursveiflu hækkum við þær, ef við erum í uppsveiflu lækkum við þær. Svona hluti þarf að skoða. Við þurfum að vera opin fyrir þessu, en við verðum að tryggja grunnframfærslu fólks. Við verðum að gera það. Það er þannig sem við aukum hagvöxt, með því að tryggja að allir í landinu geti tekið þátt í hagkerfinu. Annað er bara della. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)