breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
Herra forseti. Ég spái því að þegar líður á veturinn, sem við gerum okkur öll grein fyrir að verður harður og erfiður, verðum við farin að ræða hér, ekki bara stjórnarandstaðan heldur allur þingheimur, um nauðsyn þeirra aðgerða sem stjórnarandstaðan hefur lagt til og voru felldar án umhugsunar, að því er virðist. Það er margt í þessu frumvarpi sem er góðra gjalda vert og gott. En miðað við stöðuna, miðað við það sem við sjáum fyrir núna og þær bestu spár sem við höfum, gengur það of skammt til að verja fólk næstu mánuði. Það þarf fyrirsjáanleika. Í því liggur munurinn, að ákveða núna að koma fólki í skjól næstu 12 mánuði en ekki mjatla þetta út yfir allan veturinn. Þær þrjár tillögur Viðreisnar sem hér hafa verið felldar lúta að þessu, að framlengja tekjutengdar atvinnuleysisbætur, bætur í 12 mánuði, vera með sérstakan atvinnuleysisbótaauka fyrir þá sem eru á strípuðum tekjum og síðast en ekki síst, að þrefalda frítekjumarkið, til að (Forseti hringir.) gefa fólki svigrúm til að veita sjálfu sér bjargráð í aðstæðum sem það hefur enga stjórn á. Við skuldum fólki það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)