150. löggjafarþing — 136. fundur, 3. sept. 2020.
breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru .
972. mál
Virðulegur forseti. Þetta úrræði er góðra gjalda vert en ég verð þó að taka undir gagnrýni hv. þm. Halldóru Mogensen, þetta ákvæði ber öll einkenni þess að hér vilji yfirvöld stjórna afskaplega mörgum hlutum sem er kannski ekki skynsamlegt að stjórna fyrir fram heldur er betra að þeir séu frekar settir í hendurnar á sjálfum skjólstæðingum úrræðisins. Að því sögðu þá hygg ég að úrræðið sé þó til bóta miðað við ekkert og styð það þess vegna.