150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

afbrigði.

[16:19]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Það mætti kannski að einhverju leyti segja að þetta mál sé Covid tengt, það sé tengt þessari ríkisábyrgð. Efnahags- og viðskiptanefnd ætlar að flytja málið. Ef nefnd getur lagt einhver mál fyrir þingið, þvert á það sem var samið um þegar þinginu var að ljúka í sumar, er það alveg hægt með strandveiðifrumvarp líka, þ.e. að leyfa megi strandveiðar í september. Það er líka Covid-mál og þar af leiðandi gæti atvinnuveganefnd alveg flutt það. Þetta verður að hanga saman. Það er ekki hægt að taka það bara út fyrir sviga, út fyrir samkomulag sem var gert, og segja að þetta sé hægt vegna þess að nefnd geri það og þingsalurinn samþykki þetta.

Ég hvet alla í minni hlutanum til að hafna þessari atkvæðagreiðslu. Við höfnum henni. Það þarf tvo þriðju hluta til að afbrigðin séu samþykkt. Ég hvet alla í minni hlutanum til að setja sig upp á móti því að taka málið á dagskrá fram hjá samningum með svona fjallabaksleið. Svo verður bara að semja um það hvort þetta sé Covid-mál sem eigi að fara á dagskrá. (Forseti hringir.) Ef svo er þurfa fleiri Covid-mál að fara á dagskrá á þessu þingi.