breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Herra forseti. Hagræðing í rekstri, aðhald. Við erum á fordæmalausum tímum. Ég skil ekki hvers meiri hlutinn ætlast til af hjúkrunarfræðingnum, lækninum, sjúkraliðanum og kennaranum, sem er allt fólk í framlínunni. Á þetta fólk að hlaupa hraðar? Er það markmiðið? Ég er að segja: Gott og vel. Menn geta barist fyrir hagræðingu og aðhaldi og öðru slíku á öðrum tíma. Núna á þessum tíma er galið, að mínu mati, að það sé haldið í sérstaka aðhaldskröfu, á þessu Covid-ári og á næsta ári og árunum þar á eftir. Af hverju var aðhaldskrafan ekki tekinn út fyrir þessi þrjú ár? Síðan geta menn, ef þeir telja tækifæri til einhverrar hagræðingar, sett hana á aftur eftir að þessu erfiða tímabili lýkur. Það er það sem ég er að gagnrýna. Þetta er pólitík, herra forseti, og þetta er blaut tuska framan í þá opinberu starfsmenn sem eru þandir til hins ýtrasta í þeirri stöðu (Forseti hringir.) sem er uppi. Ég skil ekki af hverju ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er tilbúin að halda í þessa kröfu. Þetta er hneyksli, herra forseti.