breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Willum Þór Þórssyni fyrir svörin. Jú, við erum sammála að mörgu leyti en því miður er það bara staðreynd að gengið og verðbólgan hafa stórhækkað matvöruverð. Hækkað matvælaverð bitnar mest á þeim sem minnst hafa. Það er kannski sorglegast og það sem ég óttast mest vegna þess að ekki var hægt að gera neitt fyrir þá verst settu í góðærinu. Það var engin stefna í því góðæri sem gekk yfir fyrir skömmu að gera vel við þá verst settu, eldri borgara og öryrkja, og hækka þá. Því miður virðist það alltaf vera þannig þegar kreppir að, þá bitnar það líka á þeim verst settu. Þá eiga þeir að herða sultarólina og taka á sig byrðar í stað þess að við verjum þá.
Ég spyr: Hver stefnan? Væri það þá ekki kjörin stefna að sjá til þess að þeir hópar (Forseti hringir.) yrðu ekki verr staddir á tímum Covid en þeir voru fyrir?