breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir að taka hér upp umræðu um rannsóknir, nýsköpun og menntun. Þetta er langhlaup. Það tekur svolítinn tíma fyrir það að komast á legg og þá, eins og ég sagði áðan, kristallast einhvern veginn mikilvægi þess. Ég ætla að vona að ég nái að svara hv. þingmanni því að mig langar að hafa aðdraganda að þessu. Á hinn bóginn er og hefur lengi verið þekkt að ferðaþjónustan, sem er samofin atvinnugrein, felur í sér ýmsar áskoranir þegar kemur að atvinnuuppbyggingu. Við getum kallað það fylgikvilla. Ég hef ekki tíma til að útskýra það allt en ég held að við megum aldrei missa sjónar á mikilvægi nýsköpunar og rannsókna. Ég lít á þetta sem upptakt í stefnunni, að við (Forseti hringir.) eigum fyrir því að geta sett meiri fjármuni og (Forseti hringir.) kraft í rannsóknir, nýsköpun og þróun.