150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[17:19]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf):

Herra forseti. Við erum að tala um eitt stærsta og þýðingarmesta þingmálið á þessum svokallaða þingstubbi. Við erum að breyta fjármálastefnu hins opinbera. Það er gert af ríku tilefni. Ísland er að ganga í gegnum sína dýpstu kreppu í 100 ár. Hugsið ykkur, í 100 ár. Meginatvinnugrein þjóðarinnar er hrunin. Atvinnuleysi hefur aldrei verið eins mikið og því er spáð að það fari vaxandi með haustinu. Virði krónunnar hefur minnkað til muna, takið eftir því. Og eftirspurnin víða í hagkerfinu er hrunin. Að sjálfsögðu hafa þessir þættir sett ríkisfjármálin í uppnám sem kallar á endurskoðun fjármálastefnunnar.

Ég vil hins vegar minna á það, herra forseti, að fjármálastefna, sem gilda á í fimm ár, á almennt séð að vera óbreytt í fimm ár. Það gekk ekki betur en svo að hún var líka endurskoðuð í fyrra. Það var fyrir Covid, takið eftir því. Afkoma ríkisins árið 2019, fyrir Covid, var 70 milljörðum kr. verri en til stóð. Að sjálfsögðu er það áfellisdómur yfir fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins sem oft stærir sig af því að vera góður í fjármálastjórn. Reynslan sýnir að svo er ekki. Tölurnar sýna að svo er ekki. Ég ítreka að viðsnúningurinn átti sér stað áður en Covid barst til landsins. Fyrri fjármálastefnur, fjármálaáætlun og fjárlög þessarar ríkisstjórnar hafa verið gagnrýnd fyrir að vera óraunhæf og of bjartsýn. Á þeirri hefð er engin breyting núna.

Fjármálastefnan sem við ræðum núna er að mati okkar í Samfylkingunni byggð á allt of bjartsýnislegum forsendum. Gert er ráð fyrir að hagvöxturinn taki við sér strax á næsta ári og verði tæplega 5%. Það ekki lítill hagvöxtur. Gert er ráð fyrir að íslenska krónan breytist ekki neitt. Í hvaða heimi mun það gerast, hv. þingmenn? Sömuleiðis er gert ráð fyrir lítilli verðbólgu næstu árin. Það mun því miður ekki rætast, herra forseti, þótt ekki væri nema fyrir gengisáhrifin. Þegar gengi krónunnar lækkar þýðir það að krónan rýrnar í verði. Hún verður verðminni. Innflutningur verður dýrari. Við kaupum mikið til Íslands vegna þess að við framleiðum ekki mikið hér. Innfluttar vörur verða dýrari. Ég hef miklar áhyggjur af að verðbólga aukist hér. Það hefur alltaf gerst í fyrri kreppum. Af hverju ætti að verða breyting þar á núna? Við þurfum að gæta að þessu. Um leið og forsendurnar eru byggðar á svo óraunhæfum grunni er virði þessarar stefnu afskaplega lítið, herra forseti. Við sjáum að fjármálaráð, sjálfstætt ráð sem fjármálaráðherra skipar, segir að stefnan sé bæði ósamkvæm og óskýr. Samtök iðnaðarins segja að hættulegt sé að ofmeta væntan viðsnúning hagkerfisins og Samtök atvinnulífsins eru á svipuðum slóðum. Það er ekki bara stjórnarandstöðuþingmaðurinn Ágúst Ólafur sem segir þetta. Þungavigtarhagsmunaaðilar eru að vara okkur við.

Auðvitað vonum við að það rætist úr hagkerfinu og höggið verði minna en ella. En við þurfum líka að vera raunsæ. Við þurfum að vera tilbúin til að bregðast við alvarlegri stöðu. Atvinnuleysi er aðalvandamálið í dag. Það er neyðarástand á íslenskum vinnumarkaði. Lítum á störfin. Þeim hefur fækkað um 20.000. Fólk er búið að yfirgefa vinnumarkaðinn. Og hvað eru 20.000 störf? Það eru fleiri störf en samanlagt á öllu Austurlandi, öllum Vestfjörðum og Akureyri. Ef ég fer eitt ár til baka hefur íslenski vinnumarkaðurinn misst 30.000 störf. Ég get þannig bætt öllum störfum í Reykjanesbæ við þennan dapurlega samanburð sem ég dreg hér fram. Þetta eru svo gígantískar tölur, herra forseti, að ástæða er til að taka þær mjög alvarlega. Þær lúta að því að vinnumarkaðurinn er orðinn minni. Fólk er að yfirgefa vinnumarkaðinn af mörgum ástæðum en síðan erum við með atvinnuleysi sem er hlutfall af þessum vinnumarkaði sem er orðinn minni. Atvinnuleysi er ekki bara tala. Þetta eru einstaklingar, fjölskyldur, 20.000 Íslendingar sem eru orðnir atvinnulausir. 20.000 Íslendingar atvinnulausir.

Áfallið á íslenskum vinnumarkaði er algert og fjármálaráð, sjálfstætt ráð, skipað vel hæfum hagfræðingum, segir í umsögn sinni:

„Stærsta og alvarlegasta efnahagslega afleiðing núverandi ástands er mikið atvinnuleysi …“

Þess vegna skiptir svo miklu máli að við höfum annars konar ríkisstjórn sem er ekki bara ríkisstjórn lægsta samnefnarans, því að það eru ólíkir flokkar í þessari ríkisstjórn. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við höfum ríkisstjórn sem er aktíf í atvinnusköpun, ríkisstjórn sem er ekki bundin á klafa hægri kreddu og mýtu. Ég er búinn að rífast við hæstv. fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins um leiðir í atvinnusköpun síðan þetta hrun hófst. Ég vil að sjálfsögðu fjölga störfum í einkageiranum. Ég hef kallað ítrekað eftir því. Setjum meiri pening í nýsköpun. Nýsköpun er töfraorð í kreppu. En ég vil líta á heildaraðgerðir þessarar ríkisstjórnar. Einungis 5% af öllum Covid-aðgerðunum fara í nýsköpun. Það er sorglegur vitnisburður um allt of litla áherslu á nýsköpun sem styrkir einkamarkaðinn.

Ég hef líka kallað eftir því að við eigum að styrkja opinbera þjónustu. Við eigum að fjölga opinberum störfum og ég er ekki að tala um einhverja atvinnubótavinnu eða neitt slíkt. Ég er að tala um að fjölga opinberum störfum annars vegar til að mæta atvinnuleysinu en líka til að bæta þjónustuna við okkur sjálf. Það vantar hjúkrunarfræðinga. Það vantar sjúkraliða. Það vantar lögreglumenn. Það vantar fólk í barnaverndarkerfið. Það vantar fleiri vísindamenn. Það vantar fleiri félagsráðgjafa. Það vantar fleiri sálfræðinga innan heilsugæslunnar og skólanna. Tækifærin eru mýmörg. Við höfum menntað margt af þessu fólki. Við þurfum að ráða það. Ég varpaði fram þeirri hugmynd um daginn hvort við ættum ekki að nýta þessa sérkennilegu tíma og stytta vinnuvikuna með þeim hætti að fólk haldi sömu launum – lykilatriði: haldi sömu launum – gegn styttri vinnuviku. Við það myndast að sjálfsögðu þörf á að ráða fleiri. Skoðum þá hugmynd. Þetta væri víða hægt hjá hinu opinbera. Verum svolítið frjó, svolítið frumleg, í atvinnusköpun. Hugsum aðeins um hvað skilar mestum árangri. Opinber störf eru arðbær störf. Í allt sumar hef ég rifist við Sjálfstæðismenn sem eru alltaf að tala um að verðmætasköpunin sé einungis hjá einkageiranum. Það er bara rangt. Verðmætasköpunin er ekki bara hjá þeim sem vinna hjá einkaaðilum. Það er rangt. Það eru heilmikil verðmæti fólgin í opinberum störfum og mörg þeirra starfa gera störfin í einkageiranum auðveldari.

Okkur vantar fjárfestingarátak, stórt fjárfestingarátak sem skapar störf og ver störf. Ég get nefnt alls konar hugmyndir. Auðvitað þarf að setja meiri kraft í framkvæmdir, í samgönguumbætur. Gerum stórátak í nýsköpun, í tækni, orkuskiptum og umhverfismálum. Veðjum á sjónvarps- og kvikmyndageirann. Ég veit ekki hversu margar ræður ég er búinn að halda um það. Það er svo auðveld leið fyrir okkur að veðja á sjónvarps- og kvikmyndageirann. Ég hef sagt að það gæti orðið okkar næsti Eyjafjallajökull. Það býr til umsvif, skatttekjur, störf, framtíðarferðamanninn. Það eina sem þessi geiri kallar eftir er að við aukum endurgreiðsluhlutfallið. Við gætum gert það eftir hádegi. Ráðherrann gæti gert það en hún gerir það ekki.

Förum í umfangsmikla grænmetisframleiðslu, látum hana ekki bara fylgja örlítið með á meðan ráðherrarnir muna eftir því. Verðum stór grænmetisframleiðsluþjóð. Við höfum allt sem til þarf. Við höfum heitt og kalt vatn og orkuna. Þetta er eitthvað sem við eigum að gera af miklu meiri krafti. Ég veit að það er aðeins verið að nuddast í þessu en gerum þetta að hluta af skilgreindri atvinnustefnu. Verum útflytjendur á sumu grænmeti. Að sjálfsögðu eigum við að geta framleitt fyrir innlenda markaðinn en hugsum aðeins stærra. Ég ætla að varpa þeirri hugmynd úr þessum stól að íslenskt grænmeti þurfi ekki að vera ódýrt. Við getum algerlega selt grænmetið okkar dýrt. Við erum útflytjandi á fiski á heimsmælikvarða. Ég skal segja ykkur að íslenskur fiskur er dýr á alþjóðlegum mörkuðum. Hann er dýr enda er hann góður og hann er hollur, heilnæmur o.s.frv. Veiðarnar eru sjálfbærar. Hugsum eins með grænmetið. Um þetta þarf ekki að vera flokkspólitískur ágreiningur. Seljum grænmeti og styðjum við grænmetisbændur með því að niðurgreiða raforku, niðurgreiða flutningskostnað og hjálpa þeim að komast af stað. Stundum þarf að eyða pening til að búa til peninga og grænmetisframleiðslan er dæmi um það. Nú fara um 5% af búvörusamningi í grænmetisframleiðsluna. Breytum þessu. Fjórföldum grænmetisframleiðsluna í staðinn fyrir að auka hana um einn fjórða eins og ríkisstjórnin er með að markmiði. Þau vilja auka grænmetisframleiðslu um einn fjórða. Ég segi: Fjórföldum hana. Það er hægt. Það er ekkert sérstaklega dýrt í ljósi þess sem við erum að gera þessa dagana.

Við þurfum að efla listastarfsemi. Fyrir hvað eru Íslendingar helst þekktir meðal útlendinga? Listina okkar. Það er tónlistin, kvikmyndirnar, sjónvarpið og myndlistin. Alls konar listir. Veðjum á hönnun og rannsóknir, tækniþróun í heilbrigðisþjónustu, lyfjaþróun, tölvuleikjaþróun, iðnað af ýmsu tagi. Tækifærin eru víða. Nú er tækifæri fyrir okkur, ríkið, að taka þátt. Nú leyfist margt sem ekki leyfðist áður. Ríkið þarf að beita sér í kreppu. Þegar eftirspurnin dregst svona saman á einkamarkaðinum á hið opinbera að koma inn. Ég er búinn að segja þetta og segi það aftur. Keynes kenndi okkur það fyrir 100 árum. Ríkisstjórnir, hvort sem þær eru hægri eða vinstri, eru að gera þetta. Ég varði sumrinu í að skoða kreppufræði, ef svo má segja. Ég hlustaði á hvert hlaðvarpið á fætur öðru um hvað ríkisstjórnir gerðu í kreppum. Það var samhljómur meðal sérfræðinga um að helstu mistök sem ríkisstjórnir gera í kreppum er að gera of lítið. Þegar við erum í jafn djúpri kreppu og raun ber vitni getum við ekki gert of mikið. Við þurfum að kasta netinu víðar. Sumt mun virka, annað ekki. Nú þurfa allir að róa í sömu átt, skapa störf, skapa umsvif og koma hjólunum aftur af stað. Það er of lítið gert af því.

Ég er að brýna ríkisstjórnarflokkana til góðra verka. Þið hafið stuðning til að gera meira. En það gerist svo lítið á meðan hæstv. fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, stjórnar öllu sem hann vill stjórna. Hvar eru hinir ráðherrarnir? Það eru þrír flokkar í þessari ríkisstjórn. Hvar eru fingraför Framsóknarflokksins og Vinstri grænna eða sumra Sjálfstæðismanna sem ég veit að geta alveg tekið undir margt sem ég tala um hér? Við sjáum alltaf leka úr fjármálaráðuneytinu gamaldags hugsun „Thatcherismans“, að gera ekki sérstaklega mikið, að við eigum að treysta á svokallaða sjálfvirka sveiflujafnara. Á meðan er ríkisstjórnin á sjálfsstýringu. Ég vil aktífa ríkisstjórn sem spýtir í að öllu leyti. Þegar hjólin fara aftur að snúast drögum við, hið opinbera, okkur í hlé. Þannig virkar það, herra forseti. Þannig aukum við verðmætasköpunina, framleiðnina og umsvifin. Um leið og umsvifin aukast fáum við skatttekjur. Ríkið tekur u.þ.b. einn þriðja af því sem er framleitt í landinu í gegnum skatta. Það kostar pening að búa til pening. Gerum það.

Fyrir Covid voru vandræði í mörgum félagslegum og opinberum innviðum, hvað þá núna. Munið umræðuna í janúar áður en Covid kom. Ég veit ekki hversu mörg viðtöl ég fór í um stöðu Landspítalans í janúar. Þá sagði starfsfólk þar: Það er neyðarástand. Orð starfsfólksins. Það var neyðarástand á Landspítalanum fyrir Covid. Getið þið ímyndað ykkur hvernig ástandið er nú? Þess vegna velti ég fyrir mér: Af hverju er haldið í aðhaldskröfu í nýju fjármálastefnunni gagnvart Landspítalanum, heilsugæslunni, öldrunarstofnunum, skólum og meira að segja gagnvart nýsköpun, listafólki o.s.frv. Aðhaldskrafan er enn þá inni. Mér finnast það svo röng skilaboð að gerð sé sérstök aðhaldskrafa á þessa aðila á Covid-árinu 2020. Og árin 2021 og 2022. Hafi menn einhverja trú á almennri aðhaldskröfu til að ná fram hagræðingu er ekki stemning fyrir því að geyma hana til 2023? Er þetta rétti tíminn fyrir sérstaka aðhaldskröfu? Hæstv. ráðherra sagði: „Já, við þurfum að koma í veg fyrir sóun.“ Ég get alveg fullyrt að það er ekki sérstaklega mikil sóun hjá Landspítalanum í dag. Ég sé enga sérstaka sóun í heilsugæslunni eða skólunum. Þetta er bara þessi hægri mantra og kredda sem ég er alltaf að gagnrýna: Hagræðing, hagræðing. Menn geta kallað þetta hvað sem er en með sérstakri aðhaldskröfu fær stofnunin minni pening en ella. Í því felst aðhaldskrafan. Ráðherra sagði líka að þetta væri svo lítil aðhaldskrafa. Þar sem aðhaldskrafan kemur fram í hans eigin fjármálaáætlun stendur, tilvitnun hefst: „Gert er ráð fyrir að aðhaldsmarkmiðin skili 5,3 milljarða kr. lækkun á útgjaldavexti að nafnvirði á fyrsta ári tímabilsins …“ 5 milljarðar er mikið. Og sé litið til uppsafnaðs aðhalds á tímabili fjármálaáætlunarinnar, —takið eftir þessu, þetta er í texta ráðherrans sjálfs — aftur hefst tilvitnun: „Í heildina nemur uppsafnað aðhald út tímabilið 57,7 milljörðum kr.“ Finnst ykkur það lág upphæð? Þetta er gagnvart öllu kerfinu. Það er ekki lítil aðhaldskrafa. Ef menn vilja ná fram hagræðingu gera menn það á öðrum tíma en núna.

Til viðbótar langar mig að benda á að í áætluninni er sagt að ekki verði aukið við réttindi fólks í velferðarkerfinu: „… nema til komi samsvarandi lækkun útgjalda í öðrum tilfærslukerfunum.“ Tilfærslukerfið er annað orð yfir bætur. Hæstv. fjármálaráðherra leggur fram fjármálaáætlun þannig að fingraför Sjálfstæðisflokksins eru úti um allt. Við erum búin að skoða þessa stefnu á vettvangi fjárlaganefndar þar sem eru fleiri þingmenn en Sjálfstæðismenn. Hvernig stendur á að við breytum þessu ekki? En meiri hlutinn treystir sér ekki í það. Af hverju getur ekki verið skilningur á því að í einhverjum tilvikum þurfi ekki bara að verja kerfið heldur kannski að bæta í það án þess að lækka annars staðar á móti? Ákveðnir hópar í þessu samfélagi eru að lenda í miklum vandræðum. Fátækt er að fara að aukast hér á landi út af atvinnuleysi og fátækt er ömurlegt hlutskipti í okkar ríka landi. Fátækt fólk hættir ekki að vera til þótt bæturnar séu lágar. Það skiptir svo miklu máli að hafa hér myndarlegt og örlátt velferðarkerfi. Það er ömurlegt að missa fólk í fátækt, hvað þá langtímafátækt. Það er efnahagsleg sóun og það er félagslega og heilbrigðislega ömurlegt fyrir viðkomandi og viðkomandi fjölskyldur. Því ætti ekki að vera skrifað í fjármálastefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að ekki megi setja krónu til viðbótar í bótakerfið nema lækkun komi á móti. En það er gert og það er ekki góð pólitík, herra forseti. Þetta fór óbreytt í gegnum fjárlaganefndina, þar sem fulltrúi Vinstri grænna situr og þar sem fulltrúi Framsóknarflokksins situr sömuleiðis og er formaður.

Ég hef hvatt félaga mína og samstarf í nefndinni er ágætt. Mér er hlýtt til kollega minna í nefndinni en ég er krítískur á þau því að ég veit að þau hafa hjartað á réttum stað. Sýnum það í verki. Ég hef verið í stjórnarmeirihluta, ég hef verið formaður í nefnd í stjórnarmeirihluta, og ég veit alveg hvað felst í því. Ég veit líka að það er hægt að gera meiri breytingar og kröfur til ráðherranna. Ráðherraræðið á Íslandi — og það er ekki bara bundið við þessa ríkisstjórn — er allt of mikið. Við sem sitjum í þessum sal og erum bæði með löggjafarvaldið og fjárveitingavaldið erum allt of gjarnan álitin einhvers konar stimpilpúði framkvæmdarvaldsins. Hlutirnir fara allt of oft óbreyttir í gegn, þvert á samvisku mjög margra þingmanna. Ég veit að mörgum þingmönnum svíður dæmin tvö sem ég nefni, að halda í aðhaldskröfu gagnvart spítölum og skólum og að hér sé ákveðið að ekki sé bætt í bótakerfið nema lækkun komi á móti. En af hverju breytum við þessu ekki? Hæstv. ráðherra hefur skilað frá sér stefnunni. Hún er komin til okkar. Við getum svo sannarlega sent sterkari og jákvæðari skilaboð heldur en formaður Sjálfstæðisflokksins var tilbúinn að gera.

Þessi stefna gildir til 2022. Í næstu viku fáum við fjármálaáætlun. Það verður enn þá meiri pólitík í henni. Við erum með lög um opinber fjármál og í þeim lögum eru fjármálareglur. Þær eru strangar, t.d. regla um að heildarjöfnuður hjá hinu opinbera þurfi að vera jákvæður á fimm ára tímabili. Þar er líka regla um að við eigum að greiða niður skuldir tiltölulega hratt. Það er allt of bratt að mínu mati að láta fjármálareglurnar, þessar ströngu reglur, taka gildi strax 2023. Mikilvægt er að þeir þingmenn sem taka þátt í þessari umræðu segi það hér og nú að við ætlum ekki að láta fjármálareglurnar gilda 2023–2025 vegna þess að nú stefnir í mikinn halla hjá ríkissjóði og við eigum að taka lengri tíma í að niðurgreiða. Við skuldum fyrst og fremst sjálfum okkur. Meðal annars hefur Seðlabankinn verið að prenta peninga. Ólíkt því sem var í bankahruninu, þegar við skulduðum mikið erlendis, getum við tekið lengri tíma til að ná hallanum niður. Ef við gerum það ekki, ef við látum fjármálareglurnar tikka inn strax eftir tvö ár, blasir við blóðugur niðurskurður hjá hinu opinbera. Og hvað er hið opinbera? Ég heyri stundum „báknið“. Hið opinbera erum við og þið, hið opinbera eru skólar og vegir og eftirlitsstofnanir sem halda vöku yfir velferð okkar sem neytenda, skattgreiðenda eða hvaðeina. Velferðarkerfið eru elliheimilin, heilsugæslan, sýslumennirnir, hvað sem er. Þetta er allt það sem við erum tilbúin að verja vegna þess að það bætir lífskjör og lífsgæði okkar. Og það dreifir sömuleiðis byrðunum.

Tekjur Íslendinga og eignastaða er misjöfn. Ég hef ítrekað gagnrýnt hversu mikið eignaójöfnuður hefur aukist á Íslandi. Það er önnur umræða. Við þurfum að hafa kerfi sem grípur þá sem verst standa í samfélagi okkar. Við þurfum að passa þá sem reiða sig á opinberu þjónustuna. Og hverjir eru það? Það eru aldraðir, öryrkjar, námsmenn, sjúklingar og það er fátækt fólk. Þetta eru hópar sem telja tugþúsundir. Þetta eru hópar sem við eigum ekki að láta taka höggið 2023. Við þurfum að hlífa kerfinu þótt það kosti að við séum lengur að greiða niður skuldirnar okkar og hallann. Gott og vel, gerum það. Ég vona að flestir þingmenn séu sammála því. Það skiptir máli hvernig við vinnum okkur upp úr þessu.

Ég veit að ég er frekar svartsýnn á íslenskt hagkerfi, en til skemmri tíma. Ég vil líka minna fólk á að það birtir til um síðir. Þetta er ekki fyrsta efnahagshrun okkar og því miður ekki það síðasta. En við höfum ótrúlega öflugan og mikilvægan mannauð í hverjum einasta Íslendingi og í okkur sem samfélagi. Við höfum náttúruauðlindir. Við höfum ótal tækifæri til að komast upp úr þessu með samtakamætti og með viljanum til að skilja engan eftir. En þá þurfum við að verja velferðina og spýta í atvinnusköpun og fjárfestingu. Við þurfum varnir í velferðinni og við þurfum að fara í sókn í störfum. Það getum við gert.

Nú er einstakt lag, herra forseti, að hugsa stórt, að hugsa út frá hugmyndafræði hins blandaða hagkerfis sem ríkustu lönd jarðar aðhyllast. Við þurfum að yfirgefa kreddufulla hægri stefnu Sjálfstæðismanna og fara leið jafnaðarmanna því að hún er réttlát og hún er líka góð hagfræði. Hún skapar verðmæti, skapar störf, eykur umsvif, leyfir öllum að njóta sín. Við erum 360.000 manns á þessari litlu eyju. Til að setja þær tölur í samhengi fæðast í dag jafnmargir í heiminum og Íslendingar eru. Íbúafjöldi Íslands fæðist aftur á morgun. Við erum lítið samfélag en getum verið ríkt samfélag, réttlátara samfélag, ef við bara munum að deila byrðunum. Mildum höggið gagnvart þeim hópum sem veikir voru fyrir, eins og öryrkjum og hluta aldraðra, og auðveldum lífið hjá námsmönnum.

Nú er áskorun að ná til atvinnulausra. Auðvitað er það alveg galið, herra forseti, og jaðrar við ómanneskjulegt, að ætlast til að Íslendingar sem missa vinnuna geti lifað á 240.000 kr. eftir skatt. Það eru atvinnuleysisbæturnar. Við í Samfylkingunni erum búin að leggja til ítrekað að við hækkum atvinnuleysisbæturnar. Við getum ekki ætlast til að vinir okkar og samborgarar lifi á þessum skammarlega lágu atvinnuleysisbótum. Hækkum þær a.m.k. tímabundið. Byrjum á því ef það er eitthvað sem við getum náð saman um. Og munið að ef við hækkum bætur hjá fólki sem hefur lágar bætur mun það eyða þeim öllum. Þetta fólk á ekki annarra kosta völ en að eyða hverri einustu krónu sem það fær til viðbótar því að bæturnar eru svo lágar. Við lifum í einu dýrasta samfélagi heimsins. Við getum ekki boðið samborgurum okkar upp á svona lágar bætur. Við þurfum þess ekki. Það er hægt að hækka bæturnar. Það eina sem skortir er pólitískur vilji.

Ég vona svo innilega, herra forseti, að við fáum ríkisstjórn eftir næstu kosningar sem hugsar um fólk en ekki bara fyrirtæki. Við þurfum að fá ríkisstjórn sem hugsar um að efla bæði opinbera þjónustu og einkaframtakið. Við þurfum ríkisstjórn sem skapar störf en niðurgreiðir ekki bara uppsagnir. Við þurfum að fá ríkisstjórn sem er starfi sínu vaxin og lítur á markmið sitt sem eitthvað meira en stöðugleika í stjórnarfari eins og forsætisráðherra sagði að væri meginmarkmið ríkisstjórnarinnar. Hvað er stöðugleiki í stjórnarfari? Það er að halda í ráðherrastóla. Hvar er metnaðurinn hjá þessari ríkisstjórn? Ríkisstjórn sem hallar sér aftur og treystir á hina sjálfvirku sveiflujafnara ríkisfjármálanna er ríkisstjórn sem gerir of lítið. Nú þurfum við ríkisstjórn sem gerir meira. Nú þurfum við ríkisstjórn sem hugsar til allra hópa og nær að koma umsvifunum aftur af stað, nær að búa til störf og bæta lífsgæði og lífskjör allra Íslendinga.