breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ágústi Ólafi Ágústssyni fyrir innblásna ræðu, hann var svolítið svartur en í senn bjartur á köflum. Margt af því sem hv. þingmaður kom inn á get ég tekið undir. Það er verkefni okkar allra að takast á við atvinnuleysið sem byggist hratt upp við þessar kringumstæður, og að koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi. Við getum öll tekið undir það markmið. Svo er þetta spurning um leiðirnar að því. Rannsóknir, nýsköpun og þróun eru þættir sem eiga að vera viðvarandi í kerfi okkar og umhverfi og við getum alltaf gert betur þar. Ég get tekið undir það. Hv. þingmaður kom inn á orkuna og grænmetisframleiðsluna, listirnar, menninguna, íþróttirnar, opinberu störfin, kvikmyndirnar.
Við settum aukin framlög til flestra þessara þátta í vor. Ég get tekið undir margt af því sem hv. þingmaður kom inn á þar, en við erum að tala um atvinnuleysi og við erum búin að fjárfesta jafn mikið og raun ber vitni í ferðaþjónustu, enda hefur uppgangurinn þar verið mikill. Mikill vöxtur hefur verið á undanförnum árum og náttúruauðlindirnar eru hluti af ástæðunni fyrir því að Ísland er eftirsóknarverður áfangastaður. Nú erum við með mikinn slaka, atvinnuleysið hefur raungerst að stærstum hluta í ferðaþjónustu og framleiðslutækin í hótelunum, í langbifreiðunum, í gistingunni, annars konar gistingu o.s.frv. En það sem mér fannst vanta í þessa ræðu er: Er það ekki réttur skilningur hjá mér, hv. þingmaður, að til að þetta geti hjarnað hratt við á ný og við getum mætt þessu þurfum við ekki að huga að ferðaþjónustunni í þeim efnum?