150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[18:01]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Varðandi kvikmyndageirann: Það sem var bætt inn sl. vor, og hv. þingmaður veit þetta, var til að mæta eldri skuldbindingum sem lúta að endurgreiðslu framleiðslukostnaðar. Þetta voru eldri skuldbindingar sem ríkið var skuldbundið til að mæta, það kom skýrt fram. Það var engin viðbót til að laða að ný verkefni. Að sjálfsögðu á ríkið að standa við fyrri skuldbindingar en það er engin viðleitni til að laða að ný verkefni og það er það sem ég kalla eftir. Endurgreiðsluhlutfallið, sem er 25%, er óbreytt. Fólk sem starfar í þessum geira hefur sagt: Hækkið það upp í 35%. Það munar öllu. Önnur ríki hafa verið að gera þetta, Írland og Malta, af hverju gerum við það ekki? Það laðar verkefni að. Ef hv. þingmanni er umhugað um þetta hlýtur hann að geta komið með mér í þá vegferð. Hækkum endurgreiðsluhlutfallið og aukum líka framlög í Kvikmyndasjóð. Ég ætla að minna á það, út af því að ég þekki þessar tölur, að í fjárlögum þessa árs, 2020, var 30% niðurskurður í endurgreiðslum vegna kvikmyndagerðar í gegnum Kvikmyndasjóð. Það voru skilaboðin sem voru gefin þegar fjárlög þessa árs voru samþykkt. Þetta skiptir máli vegna þess að hér eru vannýtt tækifæri.

Varðandi innspýtingar vegna verklegra framkvæmda veit ég að ýmislegt er gert. Ég er ekki að segja að ekkert hafi verið gert, ég er bara að segja að hægt er að gera miklu meira. Ef við lítum á fjárauka eitt og tvö eru verklegar framkvæmdir upp á 30 milljarða sem er 3% aukning ríkisútgjalda. Finnst fólki í alvörunni að 3% aukning ríkisútgjalda í verklegar framkvæmdir, samgöngubætur fyrst og fremst, nægi til að mæta dýpstu kreppu í 100 ár? Ég segi nei. Ég veit að hv. þingmanni er umhugað um margar samgöngubætur úti á landi og vonandi hér í borginni líka. Hér getum við gert meira og betur og hraðar. (Forseti hringir.) Samtök iðnaðarins hafa ítrekað bent á það og sveitarfélögin segja: Við getum gert meira ef við fáum fjármagn.