150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[20:04]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Willum Þór Þórssyni fyrir hans orð og tek að mörgu leyti undir þau. En ef við horfum á þetta raunsætt, þessa 850 milljarða, 1% af þeim er 8,5 milljarðar, hvað gætum við gert við 1%? Jú, við gætum stytt biðlista eða a.m.k. notað féð í að semja við innlenda aðila um að gera eitthvað í þeirri fjölgun sem varð á biðlistum vegna Covid, t.d. bíða um 400 manns eftir bæklunaraðgerðum. Við getum líka notað þá peninga til að sjá til þess að hjálparstofnanir geti hjálpað þeim sem þurfa á að halda. Við getum líka notað peningana til að hjálpa þessum hópi. Hann er ekki risastór en það er samt hópur af fólki í fátækt og sárafátækt. Þetta er svo lítill hluti af þessum heildarpakka, þeirri óhemjuháu upphæð sem við erum með, að mér finnst alveg réttlætanlegt að við myndum láta þó ekki nema 1% af því í þetta. Það myndi hjálpa strax og það mikið.