150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[20:48]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er dapurleg fjármálastefna. Hún er dapurleg vegna þess að hún endurspeglar dapurlega stöðu hagkerfisins. Við upplifum hér sögulegt atvinnuleysi, hrun stærstu atvinnugreinar landsins og ólýsanlegt álag á lykilstofnanir. Þessi stefna er líka dapurleg því í henni kemur fram að halda á í fyrri aðhaldskröfur á þær sömu stofnanir sem eru í framlínunni. Það á að halda í aðhaldskröfur gagnvart skólum, sjúkrahúsum, heilsugæslu, nýsköpun og menningarstofnunum. Sömuleiðis er sagt í þessari stefnu að ekki eigi að bæta í bótakerfi velferðarkerfisins nema lækkun komi á móti. Það er kannski ágætt að stjórnarþingmenn viti hvað er í þeirra eigin stefnu. Þetta er köld tuska í andlit þeirra hópa sem þurfa að reiða sig á opinbera þjónustu. Þetta er sömuleiðis reiðarslag fyrir þær opinberu stofnanir sem hafa staðið vaktina fyrir okkur á þessum sögulegu tímum, herra forseti. Að auki er þetta dapurleg stefna af því að það er lítið um von (Forseti hringir.) og uppbyggingu varðandi framtíðina. Hér þurfum við að fara í sókn. Hér þarf að byggja upp (Forseti hringir.) velferðina á nýjan leik, hér þarf að verja störf og búa til störf. En það vantar í þessa stefnu, herra forseti.