150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[20:50]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Það er skynsamlegt að endurskoða fjármálastefnu eins og við gerum hér og það deilir enginn um forsendur þess og nauðsyn. Mikilvægast er, eins og við erum að gera hér, að leggja grunn að því að uppfylla þau markmið að milda tjón heimila og fyrirtækja og veita kröftuga viðspyrnu. Til þess þurfum við að reka ríkissjóð með halla og fjármagna með lántöku. Það er ekki bara nauðsynlegt heldur skynsemi við þessar aðstæður.