150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[20:51]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Endurskoðuð fjármálastefna er ógagnsæ og almennt orðuð. Hallinn á ríkissjóði er sagður 500 milljarðar á tveimur árum þegar hann er 1.200 milljarðar á tímabili stefnunnar. Verði óvissusvigrúmið nýtt er hallinn orðinn tæpir 2.100 milljarðar kr. Á þetta er hvergi minnst í meirihlutaálitinu. Hér er beinlínis verið að fela raunverulega stöðu ríkissjóðs. Í stefnunni vantar skýrari framsetningu á áhrifum mikils atvinnuleysis á tekjur og gjöld ríkissjóðs. Ítarlegri umfjöllun vantar um hvert grunngildi fyrir sig. Forgangsröðun í ríkisrekstri skiptir miklu við þessar aðstæður. Markmið um arðsemi í fjárfestingum hins opinbera verða að vera skýr. Óvissusvigrúm á ekki að nýta í óarðbærar fjárfestingar eða til þess að auka útgjöld að nauðsynjalausu.

Miðflokkurinn leggur áherslu á framtíðarsýn þar sem markmið stefnunnar er leiðarljós um viðbrögð stjórnvalda og Alþingis á erfiðum tímum og nauðsynlegar aðgerðir til að snúa vörn í sókn. Í þeim efnum hefur ríkisstjórnin brugðist. Miðflokkurinn greiðir ekki atkvæði.