150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[20:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Í vor var gríðarlega mikil óvissa. Þá ákvað ríkisstjórnin að fresta framlagningu nýrrar fjármálastefnu og fjármálaáætlunar, til að viðhalda óvissunni í raun og veru, því að það er hlutverk stjórnvalda að setja okkur fast land undir fót til að eyða óvissu. Nú hálfu ári síðar eða svo þegar loksins kemur fjármálastefna þá verð ég fyrir dálitlum vonbrigðum. Eini hluti stefnunnar sem eitthvað er hægt að greina er í rauninni sú stefna sem á alltaf að taka í efnahagslegri niðursveiflu, að tryggja að réttindi fólks haldist og þjónusta hins opinbera sé rekin á viðeigandi hátt. Ekkert annað. Þurfti hálft ár til þess að koma fram með þessa stefnu? Í alvöru? Annað í þessari stefnu er innantóm orð sem er ekkert á bak við. Við sjáum fram á mikið atvinnuleysi á næsta ári (Forseti hringir.) miðað við þjóðhagsspá, ekki áhrif stefnunnar á það.