150. löggjafarþing — 137. fundur,  3. sept. 2020.

breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.

968. mál
[20:55]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þessi fjármálastefna er það leiðarstef sem íslenskt samfélag þarf á að halda næstu tvö árin. Hér er verið að leyfa ríkissjóði að fara í hallarekstur á komandi misserum til þess að létta byrðar af heimilum og fyrirtækjum og það er gert án þess að fara í niðurskurð á mikilvægum stuðnings- og velferðarkerfum samfélagsins.

Herra forseti. Þetta er góð stefna og hún er til þess að standa vörð um hagsmuni almennings í landinu svo að við komumst sem sterkust út úr þessari niðursveiflu.