150. löggjafarþing — 137. fundur, 3. sept. 2020.
breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
968. mál
Virðulegi forseti. Meginmarkmið þessarar endurskoðuðu fjármálastefnu er að verja og styrkja þá stöðu sem samfélagið er komið í, standa vörð um fjárhag heimila og fjölskyldna og styðja þannig við að framleiðslutækin komist ósködduð í gegnum þessa snöggu kreppu og að við getum átt kröftuga viðspyrnu á næstu árum. Það er hlutverk þessarar endurskoðunar og ég segi stoltur já við henni.