húsnæðismál .
Virðulegi forseti. Með samþykkt laga um hlutdeildarlán er stigið mikilvægt skref til að tryggja húsnæðisöryggi þúsunda fjölskyldna á næstu árum. Málið er afrakstur samstarfs stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og mikilvægt að vel takist til. Þær breytingar sem hafa orðið í vandaðri meðferð þingsins eru til góðs og ég vil sérstaklega nefna þær sem snúa að landsbyggðinni. Húsnæðisöryggi hlýtur að vera eitt af akkerum velferðarsamfélags sem vill láta taka sig alvarlega, enda grunnþörf. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur má vera stolt af þessu skrefi og ánægjulegt að breiður stuðningur skuli vera við málið á Alþingi.