150. löggjafarþing — 138. fundur,  3. sept. 2020.

afbrigði.

[21:05]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hyggst nú láta greiða atkvæði um afbrigði fyrir því að taka megi eina dagskrármálið á dagskrá en því var í fyrsta lagi útbýtt eftir 1. apríl og er ekki liðinn sá frestur sem 3. mgr. 37. gr. þingskapa áskilur, þ.e. svokölluð fimm daga regla. Auk þess eru ekki liðnar tvær nætur frá útbýtingu frumvarpsins, samanber 1. mgr. 37. gr. þingskapa. Hefst nú atkvæðagreiðsla um öll þessi afbrigði.