afbrigði.
Forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Það er náttúrlega ekki í lagi að forseti sem hefur dagskrána hjá sér og við fáum ekki — bara svo landsmenn heima skilji hvernig þetta er: Það er fundur og við erum með dagskrá. Fundinum er slitið og sagt, eins og þið hafið heyrt hérna í kvöld, að forseti boði til fundar strax þegar fundi er slitið. Þá hefur það hingað til verið þannig að dagskrá er lögð fram á borð en það er ekki hægt vegna Covid. Þá fer forseti af stað, án þess að við vitum hvað er á dagskrá, og biður um alls konar afbrigði. Það á að vera einhver bið. Hann biður um afbrigði og lætur engan vita, ekki einu sinni þingflokksformenn, að þetta sé það sem hann ætlar að setja á dagskrá. En það stendur í þingsköpum að forseti þingsins eigi að hafa samráð við þingflokksformenn um dagskrá þingsins. Það er í lögunum að hann eigi að gera það. Hann gerir það ekki, heldur reynir að smygla málinu inn þegar hann veit að það er andstaða við það. Þetta er ekki boðlegt, þess vegna greiði ég atkvæði gegn þessu. Þetta er líka vont mál, verið er að leyfa lífeyrissjóðunum að auka áhættu sína til að geta tekið þátt í áhættusömu útboði, þ.e. þessu hlutafjárútboði með ríkisábyrgð, þar sem er verið að kasta góðu fé á eftir vondu. Þetta er vont mál.