150. löggjafarþing — 138. fundur,  3. sept. 2020.

afbrigði.

[21:08]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti mun ekki tjá sig um þær ásakanir sem að honum er beint undir atkvæðagreiðslu.

Forseti hlýtur að segja, vegna þeirra orða sem að honum var beint, að nokkur misskilningur virðist á ferð í sambandi við þetta mál. Ég held að sá misskilningur hafi skýrst mjög vel á fundi forseta með formönnum þingflokka rétt upp úr klukkan fimm þegar farið var yfir þetta mál. Í ljós kom að nokkur skortur hafði verið á miðlun upplýsinga, jafnvel innan þingflokka, en þannig var að þetta mál hafði verið tekið fyrir á þremur fundum í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem m.a. þingflokkur Pírata á fulltrúa og forseti var a.m.k. grunlaus um að þær upplýsingar hefðu ekki borist með eðlilegum hætti um þingið, að til stæði að flytja þetta frumvarp.

Þegar forseta varð ljóst að ekki stóð öll efnahags- og viðskiptanefnd að flutningi málsins, sem hann vissi nokkru áður að væntanlega væri að koma fram, þá kannaði hann sérstaklega hverju það sætti og var upplýstur um að a.m.k. þrír af fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna í nefndinni hefðu ekki gert athugasemdir við að málið yrði flutt en kysu að vera ekki flutningsmenn á því. Þess þá heldur var forseti grunlaus um það að vænta mætti mikils ágreinings um það að málið kæmi á dagskrá.

Málið er fortakslaust Covid-mál og nátengt málum sem fyrir eru og tengjast afgreiðslu til fyrirtækisins Icelandair, eins og ráða má af greinargerð þessa frumvarps frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar, þar sem sérstaklega er vísað í þau þingmál, þannig að í raun er þetta fylgifrumvarp þeirra aðgerða sem strax lá fyrir að yrði fjallað um á þessu þingi. Forseti gerði þar af leiðandi engar athugasemdir þegar skrifstofan setti þetta mál á dagskrá seinni fundar sem er birt á vefnum eins og nú er gert. Það er misskilningur að það hafi nokkuð með Covid að gera að hér er ekki lengur dreift prentaðri dagskrá. Það var umhverfisverndarleg ákvörðun sem þingið tók, að draga úr pappírsnotkun og þingmenn voru hvattir til að fylgjast með framvindu og kynna sér þá dagskrá á vefnum.

Það er vissulega rétt, og undir það tekur forseti, að menn þurfa að vera árvökulir þegar hver fundurinn tekur við af öðrum en að kalla það laumuspil af hálfu forseta, að reynt sé að smygla einhverju á dagskrá eða hafa um það þaðan af verri orð er einfaldlega rangt og forseti situr ekki þegjandi undir því. Satt best að segja hefur hann fengið þó nokkra skammta af mjög ómaklegum ummælum um ýmislegt sem ekki byggjast á traustum grunni. Forseti er hér bara að reyna að stjórna fundum Alþingis samkvæmt bestu samvisku, miðla upplýsingum og hafa gott samráð við þingflokksformenn og til að því sé nú haldið til haga þá var því flaggað á þeim vettvangi fyrir allnokkrum dögum að við því mætti búast að frumvarp af þessu tagi kæmi fram þannig að bæði nefndarmaður Pírata í efnahags- og viðskiptanefnd og þingflokksformaður þeirra hefðu getað gert þingflokki sínum það ljóst að vænta mætti frumvarps af þessu tagi. Þannig lítur forseti á stöðuna. Fleira er ekki um það að segja.