150. löggjafarþing — 138. fundur,  3. sept. 2020.

um fundarstjórn.

[21:12]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur haldið þrjá fundi með formönnum þingflokka í þessari viku til að undirbúa einmitt þinghaldið þessa daga. (JÞÓ: Ekki þetta mál.) Forseti er að tala og biður hv. þingmann að grípa ekki fram í. Forseti fékk engin skilaboð um það úr efnahags- og viðskiptanefnd að hann þyrfti að taka einhver sérstök samtöl um það hvort þetta mál mætti koma á dagskrá. Þar kann aftur að vera sambandsleysi á ferð. Hafi nefndin talið að það þyrfti að ræða það sérstaklega á einhverjum öðrum vettvangi hvort mál sem frá henni var komið mætti koma á dagskrá hefði þurft að koma þeim skilaboðum áleiðis. Forseti les ekki hugsanir manna sem eru fjarstaddir á fundi (Gripið fram í.) þannig að þeim skilaboðum var aldrei komið til forseta að eitthvað væri því til vandkvæða að taka þetta mál á dagskrá. Það er staðreynd málsins. (JÞÓ: Af hverju …) Forseti biður hv. þingmann að vera ekki gjammandi fram í. Hann getur gert það þegar aðrir þingmenn tala en forseti hefur áður sagt að hann mun ekki líða frammíköll þegar hann er að flytja yfirlýsingar eða tala af forsetastóli. Þá má fara að tala um virðingu Alþingis, ef ekki einu sinni það fær að vera í friði.