150. löggjafarþing — 138. fundur,  3. sept. 2020.

um fundarstjórn.

[21:14]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Gengið var út frá því á fundum efnahags- og viðskiptanefndar að málið yrði rætt meðal þingflokksformanna. Það var forsendan sem var gefin. Við höfum ágætisfordæmi fyrir því hvernig var að koma framlengingu pakkaferða á dagskrá og hvernig það var gert í sátt allra og án þess að tala þyrfti við þingflokksformenn. Það var vegna þess að formaður nefndarinnar, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, óskaði eftir að nefndarmenn leituðu samþykkis sinna þingflokka fyrir því að flytja það mál. Það var gert, leyfi veitt fyrir því, allir sáttir og tími gefinn fyrir samráð. Í þessu máli kom fram á fundum efnahags- og viðskiptanefndar að gengið yrði út frá því að þingflokksformenn þyrftu að ræða málið áður en það kæmi á dagskrá þannig að við a.m.k. stóðum í þeirri góðu trú að til stæði að hafa samráð við þingflokksformenn um ný dagskrármál eins og hefur verið um öll önnur dagskrármál á þessu (Forseti hringir.) þingi. Ég skil ekki af hverju þetta mál ætti að vera eitthvað öðruvísi.