um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Nú þykir mér Píratar ganga fulllangt í ásökunum. Einhver misskilningur átti sér stað. Boð bárust ekki til forseta, það kom í ljós í dag. Málin voru rædd og allt lagt á borðið um hvernig fundir færu fram í dag og í kvöld. Eitthvað virðist skorta á samskipti innan hóps Pírata. Það er lágmark að fólk tali þar saman. Við Framsóknarmenn kunnum á svona tæki og kunnum að senda skilaboð þó að við séum ekki alltaf í sama herbergi og það hljótið þið að ráða við, ágætu Píratar. En hér er bara alveg nóg komið. Við skulum halda áfram að vinna hérna. (Gripið fram í: Þetta er rangt.) (Gripið fram í: Heyr, heyr.)